Kvennalið ÍA er nýkomið úr æfingaferð á Spáni. Ljósm. kfía

ÍA vann Völsung í Lengjubikarnum

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Á laugardaginn tók ÍA á móti liði Völsungs í riðli 2 í C deild kvenna í Lengjubikarnum og fór leikurinn fram í Akraneshöllinni. Leikurinn var jafnframt styrktarleikur fyrir hina 19 ára Þuríði Örnu Óskarsdóttur sem hefur barist við heilaæxli frá tveggja ára aldri. Þeir sem vilja styrkja hana geta lagt inn á reikning meistaraflokks kvenna: 552-14-401121 kt. 500487-1279 og eru frjáls framlög vel þegin til að fjármagna útskriftarferð fyrir Þuríði Örnu til Lundúna.\r\n\r\nYlfa Laxdal Unnarsdóttir kom Skagastúlkum yfir á 19. mínútu og var aftur á ferðinni fimm mínútum síðar með sínu öðru marki. Lilja Björg Ólafsdóttir bætti við þriðja markinu fyrir ÍA á 62. mínútu og öruggur sigur þeirra staðreynd, 3-0. ÍA er í efsta sæti riðilsins ásamt KH með níu stig eftir þrjá leiki en þessi lið mætast í úrslitaleik um sigur í riðlinum og öruggt sæti í úrslitum C deildar. Leikurinn fer fram á morgun, þriðjudag, í Akraneshöll og hefst klukkan 20.\r\n\r\nKarlalið ÍA lék síðasta fimmtudag æfingaleik gegn Selfossi og fór leikurinn fram syðra. Skagamenn unnu stórsigur 5-0 og skoraði Viktor Jónsson tvö mörk og þeir Eyþór Aron Wöhler, Steinar Þorsteinsson og Guðmundur Tyrfingsson voru með eitt mark hver.\r\n\r\nReynir Hellissandi lék síðasta leik sinn í riðli 3 í C deild karla í Lengjubikarnum gegn Hvíta riddaranum á laugardaginn og fór leikurinn fram á Ólafsvíkurvelli. Þar urðu Reynismenn að sætta sig við stórtap, lokatölur 0-8 fyrir gestunum. Reynir lék fjóra leiki, tapaði þeim öllum og hafnaði í neðsta sæti riðilsins.",
  "innerBlocks": []
}
ÍA vann Völsung í Lengjubikarnum - Skessuhorn