{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Covid-19 faraldurinn hér á landi er á hröðu undanhaldi eftir að öllum takmörkunum vegna hans var aflétt 25. febrúar síðastliðinn. Í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu kemur fram að á þeim tíma hafi verið gert ráð fyrir að víðtækt samfélagslegt ónæmi myndi nást gegn faraldrinum, með allt að 80% hlutfalli bólusettra og/eða smitaðra. Slíkt markmið myndi nást síðari hlutann í mars. „Þetta virðist hafa gengið eftir. Álag á heilbrigðisstofnanir fer minnkandi og smitum fækkandi sem m.a. má sjá af því að hlutfall jákvæðra sýna af heildarfjölda greindra smita hefur lækkað.“ Í dag, 4. apríl, liggja 35 sjúklingar með Covid-19 smit á Landspítala, þar af einn á gjörgæslu og hafa ekki verið færri síðan 12. febrúar síðastliðinn.\r\n\r\nFyrstu tvær vikurnar eftir afléttingu allra takmarkana jókst álag á heilbrigðisþjónustuna til muna vegna útbreiddra veikinda og fjarvista starfsfólks og fleiri innlagna sjúklinga með Covid-19. Innlögnum á gjörgæslu fjölgaði hins vegar ekki. Undanfarnar tvær til þrjár vikur hefur álag á heilbrigðisstofnanir minnkað dag frá degi. Á landinu öllu eru nú, 4. apríl, 41 einstaklingur með Covid-smit á sjúkrahúsi, þar af tveir á gjörgæslu. Það er til marks um betri stöðu að 28. mars sl. var Landspítali færður af neyðarstigi á hættustig.\r\n\r\nLíkt og í öðrum löndum er ómíkron-afbrigði kórónaveirunnar hér alls ráðandi og enn sem komið hafa ekki komið fram afbrigði sem líkleg eru til að ná aukinni útbreiðslu.\r\n\r\nFyrir áramót 2022 greindust samtals 30.487 manns með COVID-19 hérlendis en eftir áramót hafa greinst 150.239 manns. Endursmit hefur greinst hjá 3.972. Af endursmitum hafa sex manns greinst þrisvar sinnum en aðrir tvisvar sinnum, samkvæmt upplýsingum sóttvarnalæknis.",
"innerBlocks": []
}