Emilía Hugrún Lárusdóttir sigraði Söngkeppni framhaldsskólanna í ár. Ljósm. vaks

FSu sigraði Söngkeppni framhaldsskólanna

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í gærkvöldi var haldin Söngkeppni framhaldsskólanna 2022 og fór hún fram í Íþróttahöllinni á Húsavík. Emilía Hugrún Lárusdóttir og skólahljómsveit Fjölbrautaskóla Suðurlands báru sigur úr býtum en flottur flutningur þeirra á lagi Ettu James, I´d Rather Go Blind skilaði þeim sigrinum. Í öðru sæti varð Rakel Björgvinsdóttir úr Menntaskólanum í Tónlist með lagið No Time To Die og þriðja sætið fékk Þorsteinn Helgi Kristjánsson frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja en hann flutti lagið 70mph.\r\n\r\nTveir framhaldsskólar á Vesturlandi sendu fulltrúa á keppnina. Signý María Brink Völundardóttir söng lagið Heyr mína bæn fyrir hönd Menntaskóla Borgarfjarðar sem margir þekkja í flutningi Ellýjar Vilhjálms. Frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi keppti Hanna Bergrós Gunnarsdóttir og flutti lagið Killing Me Softly With His Song sem margir þekkja með Robertu Flack og einnig The Fugees.",
  "innerBlocks": []
}