Héldu tónleika fyrir börn á flótta frá Úkraínu

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Miðvikudaginn 30. mars héldu nemendur og kennarar Tónlistarskóla Snæfellsbæjar, í samstarfi við foreldrafélag skólans, tónleika til styrktar börnum á flótta frá Úkraínu. Tónleikarnir fóru fram í Ólafsvíkurkirkju og heppnuðust vel. Flestir nemendur tónlistarskólans komu fram ásamt kennurum sínum. Mjög vel var mætt á tónleikana og setið í flestum sætum kirkjunnar. Ekki var rukkað sérstaklega inn á tónleikana heldur var tekið við frjálsum framlögum. Á annað hundrað þúsund krónur söfnuðust.\r\n\r\nÞess má einnig geta að enn er tekið við framlögum með því að leggja inn á reikning foreldrafélagsins: Kennitala félagsins er 671088-5739 banki 0194-05-400664.\r\n\r\n<img class=\"alignnone size-medium wp-image-52386\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/04/Heldu-tonleika-fyrir-born-a-flotta-fra-Ukrainu_2-600x400.jpg\" alt=\"\" />",
  "innerBlocks": []
}
Héldu tónleika fyrir börn á flótta frá Úkraínu - Skessuhorn