Fréttir

true

Skagamenn töpuðu stórt fyrir Sindra

Skagamenn léku í gærkvöldi gegn Sindra í 1. deild karla í körfuknattleik í síðasta heimaleik liðsins í vetur. Leikurinn byrjaði rólega en síðan tóku gestirnir fljótt yfirhöndina og leiddu með ellefu stigum við lok fyrsta leikhluta, 15:26. Gestirnir gáfu síðan Skagamönnum engin grið í öðrum leikhluta og voru komnir með 31 stigs forystu þegar flautað…Lesa meira

true

Skammhlaup í fjölbraut á morgun

Skammhlaup Fjölbrautaskólans á Akranesi verður haldið á ný á miðvikudaginn en því hefur verið frestað síðustu tvö ár vegna faraldursins. Tveir kennarar skólans, þau Finnbogi Rögnvaldsson og Aldís Ýr Ólafsdóttir, eru í skipulagsnefnd þetta árið ásamt stjórn nemendafélagsins. Þau segja að Skammhlaup hafi fyrst verið haldið árið 1999 og megintilgangurinn hafi alltaf verið sá að…Lesa meira

true

Vinna við þekju Norðurgarðs boðin út

Hafnarsjóður Snæfellsbæjar hefur auglýst eftir tilboðum í verkið Ólafsvík-Norðurtangi; þekja og lagnir. Í verkinu felst m.a. að steypa eitt rafbúnaðarhús og tvo stöpla undir ljósamöstur, ásamt því að leggja ídráttarrör fyrir rafmagn. Leggja á vatnslögn og koma fyrir vatnsbrunnum, leggja fráveitulögn og koma fyrir niðurföllum auk þess að grófjafna yfirborð og þjappa, fínjafna síðan undir…Lesa meira

true

Stuðmenn mættu á leiksýningu í Lyngbrekku

Á áttundu sýningu Umf. Skallagríms í Lyngbrekku á leikverkinu Slá í gegn, mættu góðir gestir í gær. Þar voru á ferð lagahöfundar úr Stuðmönnum en innblástur í verkið er sóttur í lög þeirra, en handritið er eftir Guðjón Davíð Karlsson, Góa. Að sögn Hafsteins Þórissonar formanns leikdeildarinnar hefur aðsóknin á sýningarnar verið góð og greinilegt…Lesa meira

true

Fyrsta skóflustungan tekin á Sementsreitnum

Akraneskaupstaður hefur formlega gengið frá samningum við fyrirtækið Fastefli ehf., sem er í eigu Skagamannsins Óla Vals Steindórssonar, um byggingarétt á uppbyggingarreit C og D á Sementsreitnum svokallaða. Það er miðsvæðis á reitnum og nær frá Jaðarsbraut að Faxabraut. Í fundagerð bæjarráðs Akraneskaupstaðar frá 10. mars síðastliðnum segir að Fastefli ehf. hafi verið með hagstæðasta…Lesa meira

true

Borgfirðingar í eldlínunni í körfu

Borgfirskt körfuboltafólk var sannarlega í eldlínunni í körfuboltanum um helgina. Bjartmar Þór Unnarsson frá Kleppjárnsreykjum og félagar hans í Fjölni kepptu til úrslita í Bikarkeppni KKÍ og enduðu með silfrið. Heiður Karlsdóttir frá Laugarvöllum varð bikarmeistari með Fjölni í unglingaflokki kvenna og Arnar Guðjónsson frá Reykholti varð þrefaldur bikarmeistari sem þjálfari; í meistaraflokki karla, 9.…Lesa meira

true

Háskólinn á Bifröst leggur til húsnæði fyrir flóttafólk

Háskólinn á Bifröst mun leggja til 69 herbergi og 17 íbúðir til móttöku flóttafólks frá Úkraínu. Borgarbyggð og Rauði kross Íslands munu halda utan um móttöku fólksins, en skólinn leggur til húsnæðið. Margrét Jónsdóttir Njarðvík rektor skólans segir í samtali við Skessuhorn að bæði nemendur og kennarar á Bifröst fái nú tækifæri til að undirbúa…Lesa meira

true

Vesturlandsliðin léku í Lengjubikarnum um helgina

Kári tók á móti KH í B deild karla í riðli 1 í Lengjubikarnum í knattspyrnu á laugardaginn. Magnús Óliver Axelsson kom KH yfir á 70. mínútu en Sveinn Þorkell Jónsson varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark fimm mínútum fyrir leikslok og jafna leikinn fyrir Kára. Það var síðan annað sjálfsmark KH sem tryggði…Lesa meira

true

Horfðu á verkstæðið sitt fuðra upp

Þriðjudaginn 8. mars síðastliðinn varð laus eldur í Bifreiðaþjónustu Snæfellsness að Sólvöllum 5 í Grundarfirði. Þar eru einnig fyrirtækin Rútuferðir og Álfar og Tröll til húsa en rekstraraðilar allra þessara fyrirtækja eru hjónin Hjalti Allan Sverrisson og Lísa Ásgeirsdóttir. Ljóst er að tjónið er umtalsvert enda húsið gjörónýtt og allt sem í því var. Það…Lesa meira

true

Tímabundin inniaðstaða púttara

Ný inniaðstaða fyrir golf- og púttiðkun hefur verið að taka á sig mynd í kjallara Hjálmakletts í Borgarnesi síðastliðnar vikur. Nú er aðstaðan tilbúin til notkunar. „Nú geta hafist æfingar barna og unglinga í golfi. Púttmótin fara aftur af stað fyrir klúbbmeðlimi ásamt því að púttiðkun eldri borgara fer aftur á fullt skrið,“ segir framkvæmdastjóri…Lesa meira