
Leikhópurinn ásamt gestum. Ljósm. Eva Summ.
Stuðmenn mættu á leiksýningu í Lyngbrekku
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Á áttundu sýningu Umf. Skallagríms í Lyngbrekku á leikverkinu Slá í gegn, mættu góðir gestir í gær. Þar voru á ferð lagahöfundar úr Stuðmönnum en innblástur í verkið er sóttur í lög þeirra, en handritið er eftir Guðjón Davíð Karlsson, Góa.\r\n\r\nAð sögn Hafsteins Þórissonar formanns leikdeildarinnar hefur aðsóknin á sýningarnar verið góð og greinilegt að fólk er farið að þyrsta í menningu eftir allt kóvið. Mjög gott útlit er fyrir sýninguna annað kvöld, þriðjudag, og svo verður tíunda sýning á fimmtudagskvöldið. Framhaldið segir Hafsteinn að ráðist af aðsókn á þessar tvær sýningar.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_52089\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-52089 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/03/Studmenn-maettu-a-leiksyningu_2-600x450.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"450\" /> Ágúst Guðmundsson sem leikstýrði myndinni Með allt á hreinu, og Stuðmennirnir Jakob Frímann Magnússon, Egill Ólafsson og Þórður Árnason.[/caption]",
"innerBlocks": []
}