
Lísa Ásgeirsdóttir og Hjalti Allan Sverrisson fyrir framan brunarústirnar. Ljósm. tfk.
Horfðu á verkstæðið sitt fuðra upp
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Þriðjudaginn 8. mars síðastliðinn varð laus eldur í Bifreiðaþjónustu Snæfellsness að Sólvöllum 5 í Grundarfirði. Þar eru einnig fyrirtækin Rútuferðir og Álfar og Tröll til húsa en rekstraraðilar allra þessara fyrirtækja eru hjónin Hjalti Allan Sverrisson og Lísa Ásgeirsdóttir. Ljóst er að tjónið er umtalsvert enda húsið gjörónýtt og allt sem í því var. Það var þung brúnin á eigendunum þegar ljósmyndari Skessuhorns kíkti á þau hjónin nýverið, á meðan stórvirkar vinnuvélar voru að rífa niður rústirnar.\r\n\r\n„Við vorum ágætlega tryggð en það bætir að sjálfsögðu ekki allan skaðann sem við urðum fyrir,“ segir Lísa Ásgeirsdóttir í stuttu spjalli við fréttaritara. „Nú liggur mest á að finna húsnæði til leigu þar sem við getum þjónustað rúturnar okkar og vonandi skýrist það á næstu dögum,“ bætir hún við, en Snæfellsnes Excursions er rútufyrirtæki sem sér um strætóferðir og skólaakstur á svæðinu.\r\n\r\n„Sem betur fer þá sluppu allar rúturnar við skemmdir og því getum við haldið ótrauð áfram með þann rekstur. Við vitum ekki alveg hvernig þetta þróast enda stutt síðan þetta gerðist. Okkur lá mest á að fjarlægja rústirnar enda er þetta slysagildra ef einhverjir færu að flækjast þarna,“ segir Hjalti, en niðurrifi og hreinsunarstarfi var að mestu lokið á sunnudeginum. „Nú þurfum við bara að sjá til hvað við gerum. Byggjum aftur eða reynum að finna hentugt húsnæði undir starfsemina en þetta þarf allt að vega og meta næstu vikur,“ segir hann.\r\n\r\n„Svo viljum við þakka kærlega fyrir þann samhug sem við höfum fundið síðustu daga frá öllum. Eins eiga slökkviliðin tvö sem komu að þessu sérstakt hrós skilið því liðsmenn þeirra stóðu sig frábærlega.“\r\n\r\nÞað var ekki neina uppgjöf af finna á þeim hjónum, þó verkefnin framundan séu krefjandi.",
"innerBlocks": []
}