Bifröst. Ljósm. James E Becker.

Háskólinn á Bifröst leggur til húsnæði fyrir flóttafólk

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Háskólinn á Bifröst mun leggja til 69 herbergi og 17 íbúðir til móttöku flóttafólks frá Úkraínu. Borgarbyggð og Rauði kross Íslands munu halda utan um móttöku fólksins, en skólinn leggur til húsnæðið. Margrét Jónsdóttir Njarðvík rektor skólans segir í samtali við Skessuhorn að bæði nemendur og kennarar á Bifröst fái nú tækifæri til að undirbúa móttökuna en mikilvægasta verkefnið sé að skapa frið og öryggi fyrir fólkið. „Þetta verður áskorun en jafnframt tækifæri fyrir okkur hér á Bifröst og samfélagið allt að láta gott af okkur leiða. Þetta er verkefni sem gæti styrkt þræðina í sveitarfélaginu öllu,“ segir Margrét. Aðspurð segist hún ekki vita hvernig fjölskyldumynstur séu væntanleg, en mestar líkur á að það verði konur með börn eða fullorðið fólk. Karlmenn séu áfram heima og taki þátt í að verja landið sitt. „Við vonum auðvitað að stríðinu ljúki sem fyrst svo fólkið komist til síns heima, en tímalínan er alltaf óviss þegar stríð er annars vegar. Að sama skapi er mikilvægt þegar stríð geisar að hugsa hratt, taka stöðuna hverju sinni og bregðast við. Við erum allavega opin og jákvæð að fá þetta tækifæri og staðráðin í að láta gott af okkur leiða.“\r\n\r\nSkólinn býður 69 herbergi sem verða í rauðu húsunum, sem kennd eru við Hraun og Kot. Íbúðirnar 17 eru hins vegar í raðhúsunum meðfram þjóðveginum. „Síðasta staðlotan hér við skólann verður um næstu helgi og eftir það verður allt þetta húsnæði laust. Við sjáum því fram á að geta hliðrað til þannig að af þessu geti orðið,“ segir Margrét. Hún bætir því við að þetta verkefni verði góð æfing fyrir sveitarfélagið, en sem dæmi þarf að tryggja samgöngur við þjónustuna sem einkum er í Borgarnesi. Þá er skólinn í góðu samstarfi við Rauða krossinn á Vesturlandi, Önnu Eiríksdóttur sóknarprest og ýmsa fleiri. „Við virkjum alla sem við getum og geta stutt við þetta verkefni með okkur,“ segir Margrét að endingu.\r\n\r\nÁ þeim mánuði sem liðinn er frá innrás Rússa í Úkraínu hafa íslensk stjórnvöld leitað til sveitarfélaga, verkalýðsfélaga og fjölmargra annarra um útvegun húsnæðis til að geta geta tekið á móti stórum hópi flóttafólks. Fram hefur komið að tekist hafi að útvega nokkur orlofshús í Ölfusborgum og þá er til skoðunar að nýta Hótel Sögu sem ríkið eignaðist nýverið, auk Bifrastar og íbúða víða á höfuðborgarsvæðinu.",
  "innerBlocks": []
}
Háskólinn á Bifröst leggur til húsnæði fyrir flóttafólk - Skessuhorn