{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Ný inniaðstaða fyrir golf- og púttiðkun hefur verið að taka á sig mynd í kjallara Hjálmakletts í Borgarnesi síðastliðnar vikur. Nú er aðstaðan tilbúin til notkunar. „Nú geta hafist æfingar barna og unglinga í golfi. Púttmótin fara aftur af stað fyrir klúbbmeðlimi ásamt því að púttiðkun eldri borgara fer aftur á fullt skrið,“ segir framkvæmdastjóri Golfklúbbs Borgarness, Jóhannes Kristján Ármannsson, í samtali við Skessuhorn. Um er að ræða tímabundna aðstöðu fyrir golfiðkun innanhúss en allt golfstarf hefur legið niðri síðan aðstöðu klúbbsins var lokað í Brákarey snemma á síðasta ári.",
"innerBlocks": []
}