
Frá keppni í limbói í Skammhlaupi árið 2018. Ljósm. úr safni Skessuhorns.
Skammhlaup í fjölbraut á morgun
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Skammhlaup Fjölbrautaskólans á Akranesi verður haldið á ný á miðvikudaginn en því hefur verið frestað síðustu tvö ár vegna faraldursins. Tveir kennarar skólans, þau Finnbogi Rögnvaldsson og Aldís Ýr Ólafsdóttir, eru í skipulagsnefnd þetta árið ásamt stjórn nemendafélagsins. Þau segja að Skammhlaup hafi fyrst verið haldið árið 1999 og megintilgangurinn hafi alltaf verið sá að brjóta upp kennsluna í skólanum og hafa smá fjör og gaman í bland við fíflagang. Alls keppa í ár sex lið nemenda og eru um 50 manns í hverju liði. Hópstjórar hvers liðs eru útskriftarnemar skólans og þeir passa upp á að allir taki þátt.\r\n\r\nFjörið hefst á hádegi að þessu sinni með skrúðgöngu nemenda í lögreglufylgd frá skólanum niður í íþróttahúsið við Vesturgötu þar sem keppnin hefst. Meðal greina þar má nefna sipp, kaðlaklifur, reiptog, stígvélaspark og limbó. Að því loknu verður farið aftur upp í skóla þar sem alls kyns þrautir verða lagðar fyrir nemendur og endar keppnin á sal þar sem Finnbogi spyr þau spjörunum úr og þau taka þátt til að mynda í planki, að verpa eggjum, „silly walk“ og örleikriti.\r\n\r\nFinnbogi og Aldís Ýr segja að lokum að krakkarnir séu mjög spenntir fyrir þessu öllu saman og þá munu kennarar taka þátt í fjörinu og klæða sig í búninga til að auka stemninguna. Um kvöldið verður svo ball á Gamla Kaupfélaginu til að ljúka Skammhlaupinu með stæl.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_52096\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-52096 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/03/Skammhlaup-2022-i-FVA1-600x450.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"450\" /> Finnbogi og Aldís Ýr, kennarar í FVA. Ljósm. vaks[/caption]",
"innerBlocks": []
}