Skjáskot úr tillögu Fasteflis fyrir uppbyggingu á C og D reits á Sementsreitnum.

Fyrsta skóflustungan tekin á Sementsreitnum

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Akraneskaupstaður hefur formlega gengið frá samningum við fyrirtækið Fastefli ehf., sem er í eigu Skagamannsins Óla Vals Steindórssonar, um byggingarétt á uppbyggingarreit C og D á Sementsreitnum svokallaða. Það er miðsvæðis á reitnum og nær frá Jaðarsbraut að Faxabraut. Í fundagerð bæjarráðs Akraneskaupstaðar frá 10. mars síðastliðnum segir að Fastefli ehf. hafi verið með hagstæðasta tilboðið í útboði frá því í desember og telur bæjarráð tilboðsgjafa hafa nú þegar lagt fram fullnægjandi gögn sem krafist var í útboðinu. Þar kemur jafnframt fram að greiðsla lóðagjalda að upphæð 788,6 milljónir króna hafi öll komið til greiðslu föstudaginn 18. mars.\r\n\r\nSíðastliðinn laugardag tóku Óli Valur og fulltrúar Akraneskaupstaðar fyrstu skóflustunguna á Sementsreitnum og að því loknu var boðið upp á veitingar á Gamla Kaupfélaginu þar sem Óli Valur kynnti áform fyrirtækisins. Hann sagðist hafa skýra sýn fyrir uppbyggingu á þessu svæði þar sem hann ætlar að byggja upp græna íbúðarbyggð með sérbýli í fjölbýli og með sameiginlegum grænum svæðum. Á svæðinu á að byggja 100 íbúðir af nokkrum stærðum og gerðum. Bílakjallarar verða hálfir undir húsum á reitunum en skilja á eftir jarðveg fyrir miðju til að auka möguleika á betri gróðursvæðum í garðinum.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_52085\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-52085 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/03/Fyrsta-skoflustungan-tekin-a-Sementsreitnum_1-600x400.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"400\" /> Fyrsta skóflustungan tekin á Sementsreitnum. Ljósm. arg.[/caption]",
  "innerBlocks": []
}
Fyrsta skóflustungan tekin á Sementsreitnum - Skessuhorn