Fréttir

true

Íslensk þjóðlög í nýrri QR-tónlistarbók frá Valgerði

Nú á dögunum kom út nýtt efni helgað íslenskum þjóðlögum. Það er Valgerður Jónsdóttir, núverandi bæjarlistamaður Akraness, sem á veg og vanda að útgáfunni en verkefnið vann hún ásamt manni sínum, Þórði Sævarssyni og dóttur þeirra Sylvíu. Þau þrjú hafa starfað saman undir nafninu Travel Tunes Iceland frá árinu 2016 og tekið á móti fjölda…Lesa meira

true

Íbúum fækkar á Vesturlandi

Íbúum á Vesturlandi fækkaði um 15 frá 1. desember 2021 til 1. mars 2022. Hlutfallslega fækkaði mest í Skorradalshreppi eða um 6,7% eða um fjóra íbúa. Þá fækkaði lítillega, um innan við 1%, á Akranesi, Borgarbyggð, Stykkishólmi, Snæfellsbæ og í Dalabyggð. Hlutfallslega fjölgaði íbúum mest í Eyja- og Miklaholtshreppi en þar fjölgaði íbúum um fjóra…Lesa meira

true

Gunnar Egill sest í forstjórastól Samkaupa

Ómar Valdimarsson, sem verið hefur forstjóri Samkaupa undanfarin 13 ár, hefur ákveðið að láta af störfum hjá félaginu. Gunnar Egill Sigurðsson tekur við starfi forstjóra en hann hefur starfað hjá Samkaupum í tvo áratugi, nú síðast sem framkvæmdastjóri verslunarsviðs. Forstjóraskiptin munu eiga sér stað um mánaðamótin mars – apríl, í kjölfar kynningu ársuppgjörs síðasta árs…Lesa meira

true

Skattframtalsskil standa nú yfir

Nú stendur yfir það tímabil ársins þegar almenningur á að skila inn skattframtölum sínum. Frestur til þess er til 14. mars. Netframtal einstaklinga 2022 er að finna á þjónustuvefnum skattur.is en þar má m.a. finna einfaldar framtalsleiðbeiningar á fimm tungumálum; íslensku, ensku, spænsku, pólsku og litháísku. Skatturinn hvetur framteljendur eindregið til að nota rafræn skilríki…Lesa meira

true

Ungmennaþing Vesturlands verður haldið á Lýsuhóli

Dagana 12. til 13. mars nk. verður ungmennaþing Vesturlands haldið á Lýsuhóli í Staðarsveit. Um er að ræða samstarfsverkefni sveitarfélaga á Vesturlandi, ungmennaráðs Vesturlands og samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV). Þetta kemur fram á vefsíðu Snæfellsbæjar. Markmiðið með þinginu er að fá ungt fólk af öllu Vesturlandi saman, stuðla að uppbyggingu í þágu ungs fólks…Lesa meira

true

Vilhjálmur býður sig fram til formennsku í Starfsgreinasambandinu

Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, hefur ákveðið að bjóða sig fram til formennsku í Starfsgreinasambandi Íslands. Þetta kemur fram á heimasíðu Verkalýðsfélags Akraness. Þing Starfsgreinasambandsins verður haldið dagana 23. til 25. mars næstkomandi á Akureyri og á þinginu verður meðal annars kosið til formanns, varaformanns og í framkvæmdastjórn Starfsgreinasambandsins. Vilhjálmur segir á síðunni að undanförnu…Lesa meira

true

ÍA mætir Hamri í kvöld í körfunni í mikilvægum leik – Frítt inn

ÍA og Hamar frá Hveragerði mætast í kvöld í 1. deild karla í körfuknattleik. Leikurinn fer fram í íþróttahúsinu við Vesturgötu á Akranesi og hefst klukkan 19.15. Leikurinn er mjög mikilvægur í botnbaráttunni í næst efstu deild Íslandsmótsins. Staðan í botnbaráttunni er sú að Hamar er með sex stig og Skagamenn með tvö stig. Aðeins…Lesa meira

true

Líf og fjör á höfninni

Mikið hefur verið í gangi við Grundarfjarðarhöfn síðustu vikur og mánuði og ekkert var slegið af um liðna helgi. Alls var rúmlega tvö þúsund tonnum landað í febrúarmánuði. Fleiri myndir Tómasar Freyr fréttaritara eru í Skessuhorni vikunnar.Lesa meira

true

Ryðja brautina með fersku lambakjöti

Borgfirskir bændur, sem standa að baki Sláturhúsi Vesturlands í Brákarey, brugðu sér bæjarleið síðastliðinn þriðjudag. Í samráði við Icelandic Lamb og matreiðslumanninn Gísla Matthías Auðunsson á Skál í mathöllinni á Hlemmi, voru kynntir réttir sem unnir voru úr ófrosnu dilkakjöti af nýslátruðu. Fram til þessa hefur ekki verið hægt að kaupa ferskt lambakjöt utan hefðbundinnar…Lesa meira

true

Hárhús Kötlu hættir og Hár studio tekur við

Eftir tæplega 37 ára rekstur hársnyrtistofunnar Hárhúss Kötlu hefur eigandinn, Katla Hallsdóttir, ákveðið að leggja niður reksturinn og láta húsnæðið í hendur hársnyrtistofunnar Hár studio ehf. sem hefur haft aðsetur síðustu ár í næsta húsi á Stillholti 16. Katla hefur þó ekki lagt skærin á hilluna því hún ætlar að leigja aðstöðu hjá eigendum Hár…Lesa meira