Í Eyja- og Miklaholtshreppi var mest fjölgun á landsvísu á þriggja mánaða tímabili.

Íbúum fækkar á Vesturlandi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Íbúum á Vesturlandi fækkaði um 15 frá 1. desember 2021 til 1. mars 2022. Hlutfallslega fækkaði mest í Skorradalshreppi eða um 6,7% eða um fjóra íbúa. Þá fækkaði lítillega, um innan við 1%, á Akranesi, Borgarbyggð, Stykkishólmi, Snæfellsbæ og í Dalabyggð. Hlutfallslega fjölgaði íbúum mest í Eyja- og Miklaholtshreppi en þar fjölgaði íbúum um fjóra sem er 3,9% fjölgun, sem er einnig mesta hlutfallslega fjölgunin á landsvísu. Helgafellssveit kom þar næst á eftir með 3,8% fjölgun, eða þrjá íbúa. Í Hvalfjarðarsveit fjölgaði íbúum um ellefu og í Grundarfirði um fimm.",
  "innerBlocks": []
}
Íbúum fækkar á Vesturlandi - Skessuhorn