{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Ómar Valdimarsson, sem verið hefur forstjóri Samkaupa undanfarin 13 ár, hefur ákveðið að láta af störfum hjá félaginu. Gunnar Egill Sigurðsson tekur við starfi forstjóra en hann hefur starfað hjá Samkaupum í tvo áratugi, nú síðast sem framkvæmdastjóri verslunarsviðs. Forstjóraskiptin munu eiga sér stað um mánaðamótin mars – apríl, í kjölfar kynningu ársuppgjörs síðasta árs sem var afar gott í rekstri fyrirtækisins þrátt fyrir miklar áskoranir síðustu ára vegna heimsfaraldursins.",
"innerBlocks": []
}
Gunnar Egill sest í forstjórastól Samkaupa - Skessuhorn