
Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness. Ljósm. vlfa.is
Vilhjálmur býður sig fram til formennsku í Starfsgreinasambandinu
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, hefur ákveðið að bjóða sig fram til formennsku í Starfsgreinasambandi Íslands. Þetta kemur fram á heimasíðu Verkalýðsfélags Akraness. Þing Starfsgreinasambandsins verður haldið dagana 23. til 25. mars næstkomandi á Akureyri og á þinginu verður meðal annars kosið til formanns, varaformanns og í framkvæmdastjórn Starfsgreinasambandsins.\r\n\r\nVilhjálmur segir á síðunni að undanförnu hafi hópur formanna innan SGS og fulltrúa sem munu sitja þingið hafa haft samband við sig og skorað á hann að bjóða sig fram til formanns SGS. Hann tekur það einnig fram að formennska í SGS hafi ætíð verið hlutastarf og hafi því ekki áhrif á starf hans sem formaður í Verkalýðsfélagi Akraness enda fari vinna við að vera formaður stéttarfélags og formaður Starfsgreinasambandsins mjög vel saman. Það hafi ætíð tíðkast að formaður frá einu af aðildarfélögum SGS hafi gegnt þessu starfi samhliða starfi hjá sínu stéttarfélagi.\r\n\r\n„Í ljósi þessarar áskorunar og einnig í ljósi þess að Björn Snæbjörnsson núverandi formaður SGS hefur ákveðið að bjóða sig ekki fram hef ég tekið ákvörðun um að bjóða mig fram sem formann Starfsgreinasambands Íslands á komandi þingi SGS.\r\n\r\nÞað liggur fyrir að Starfsgreinasamband Íslands gegnir lykilhlutverki þegar kemur að því að semja um kaup og kjör fyrir verka- og láglaunafólk á íslenskum vinnumarkaði og því skiptir máli að æðsta forysta sambandsins hafi ætíð kjark, vilja og þor til að berjast af alefli fyrir bættum kjörum verka- og láglaunafólks á íslenskum vinnumarkaði. Rétt er að geta þess að Starfsgreinasamband Íslands er fjölmennasta landssamband verkafólks á Íslandi og stærsta landssambandið innan ASÍ með samtals um 72 þúsund félagsmenn.\r\n\r\nÉg tel mig hafa víðtæka reynslu og þekkingu hvað verkalýðsbaráttu áhrærir og vera því rétti aðilinn til að takast á við það verkefni sem er að gegna stöðu formanns SGS,“ segir Vilhjálmur.",
"innerBlocks": []
}