{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Dagana 12. til 13. mars nk. verður ungmennaþing Vesturlands haldið á Lýsuhóli í Staðarsveit. Um er að ræða samstarfsverkefni sveitarfélaga á Vesturlandi, ungmennaráðs Vesturlands og samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV). Þetta kemur fram á vefsíðu Snæfellsbæjar.\r\n\r\nMarkmiðið með þinginu er að fá ungt fólk af öllu Vesturlandi saman, stuðla að uppbyggingu í þágu ungs fólks í landshlutanum, skapa vettvang fyrir samtal ungmenna við frambjóðendur sveitarstjórnarkosninganna sem fara fram 14. maí næstkomandi og kynnast öðrum ungmennum, njóta og hafa gaman.\r\n\r\nÞátttakendur munu ræða stöðu ungmenna á Vesturlandi frá ýmsum hliðum auk þess sem boðið verður upp á kynningar sem tengjast málefnum ungs fólks og ungmennaráða. Þingið er ætlað ungu fólki á aldrinum 14 til 25 ára. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður við 40 manns og er lágmarkfjöldi tryggður frá hverju sveitarfélagi. Þátttakendum yngri en 18 ára þarf að fylgja fullorðinn einstaklingur.\r\n\r\nÞátttaka er gjaldfrjáls og innifalið í þátttöku er gisting, matur, vinnugögn og annað tilheyrandi. Ferðakostnaður er á höndum sveitarfélaganna sjálfra. Skráningarfrestur er til og með 6. mars. Laufey Helga Árnadóttir, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Snæfellsbæjar, tekur á móti skráningu á netfanginu <a href=\"mailto:laufey@snb.is\">laufey@snb.is</a>. Ef spurningar vakna er einnig hægt að hafa samband við Ívar Orra Kristjánsson, starfsmann ungmennaráðs Vesturlands, á netfanginu <a href=\"mailto:ivar.orri@akraneskaupstadur.is\">ivar.orri@akraneskaupstadur.is</a>.",
"innerBlocks": []
}
Ungmennaþing Vesturlands verður haldið á Lýsuhóli - Skessuhorn