ÍA mætir Hamri í kvöld í körfunni í mikilvægum leik – Frítt inn
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "ÍA og Hamar frá Hveragerði mætast í kvöld í 1. deild karla í körfuknattleik. Leikurinn fer fram í íþróttahúsinu við Vesturgötu á Akranesi og hefst klukkan 19.15. Leikurinn er mjög mikilvægur í botnbaráttunni í næst efstu deild Íslandsmótsins.\r\n\r\nStaðan í botnbaráttunni er sú að Hamar er með sex stig og Skagamenn með tvö stig. Aðeins eitt lið fellur í 2. deild og með sigri í kvöld opnast möguleiki fyrir ÍA að halda sæti sínu í deildinni. Eftir leikinn í kvöld mætir ÍA Hrunamönnum frá Flúðum og Hetti frá Egilsstöðum á útivelli, síðan taka við heimaleikir hjá þeim gegn grönnum sínum í Skallagrími úr Borgarnesi og gegn Sindra frá Hornafirði og síðasti leikur liðsins í deildinni í vetur er útileikur gegn Fjölni. Eini sigurleikur ÍA í vetur var á móti Hrunamönnum og þar væri hægt að ná sigri og þá ætti einnig að vera góður möguleiki í leikjunum gegn Skallagrími, Sindra og Fjölni en líklegast við ofurefli að etja gegn Hetti.\r\n\r\nEfsta lið deildarinnar fer beint upp í Subway deildina og liðin sem lenda í 2. til 5. sæti fara í úrslitakeppni og berjast um hitt sætið sem gefur sæti í efstu deild. Haukar eru efstir eins og stendur með 40 stig, Höttur með 36 stig, Álftanes 28 stig, Fjölnir 24 stig og Sindri og Selfoss í fimmta og sjötta sæti deildarinnar með 22 stig. Það er því mikil spenna á toppi og botni deildarinnar fram undan en deildinni lýkur föstudaginn 25. mars\r\n\r\nFrítt verður inn á leikinn í kvöld og eru Skagamenn hvattir að mæta á völlinn og styðja sína menn til sigurs.",
"innerBlocks": []
}
ÍA mætir Hamri í kvöld í körfunni í mikilvægum leik - Frítt inn - Skessuhorn