
Útgáfan felst í bók og geisladiski.
Íslensk þjóðlög í nýrri QR-tónlistarbók frá Valgerði
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Nú á dögunum kom út nýtt efni helgað íslenskum þjóðlögum. Það er Valgerður Jónsdóttir, núverandi bæjarlistamaður Akraness, sem á veg og vanda að útgáfunni en verkefnið vann hún ásamt manni sínum, Þórði Sævarssyni og dóttur þeirra Sylvíu. Þau þrjú hafa starfað saman undir nafninu Travel Tunes Iceland frá árinu 2016 og tekið á móti fjölda ferðafólks frá ýmsum löndum og kynnt þeim íslenskan þjóðlagaarf.\r\n\r\nÚtgáfan felst í bók og geisladiski en í bókinni eru ljóðin við lögin á diskinum, skýringar á ensku og ljósmyndir frá Íslandi. Síðast en ekki síst eru í bókinni svokallaðir QR kóðar, þannig að lesandinn getur auðveldlega fundið lögin á netinu með því að skanna kóðann gegnum þar til gert app í snjalltækinu sínu. Þannig er hægt að glugga í bókina og hlusta á lögin hvar sem er en geisladiskurinn fylgir með svo fólk eigi tónlistina líka á föstu formi. Tónlistin var tekin upp í Stúkuhúsinu á Byggðasafninu á Akranesi, en það hús hefur verið helsta bækistöð Travel Tunes Iceland verkefnisins, þó fjölskyldan hafi tekið á móti gestum á fleiri stöðum, svo sem á heimili þeirra og á Smiðjuloftinu, afþreyingarsetri sem þau starfrækja á Akranesi.\r\n\r\nQR Tónlistarbókin, eins og Valgerður kýs að kalla útgáfuformið, verður til sölu fyrir gesti Travel Tunes Iceland en einnig er í skoðun að hún verði seld á stöðum þar sem ferðamenn venja komur sínar. Hægt er að panta eintak gegnum traveltunesiceland@gmail.com\r\n\r\nValgerður hefur haft nóg fyrir stafni síðan hún hlaut titilinn Bæjarlistamaður Akraness 2021. Í desember 2021 gaf hún út nótnabókina Tónar á ferð - Söngbók með eigin tónlist í útsetningum fyrir barna- og ungmennakóra. Valgerður vinnur einnig að útgáfu á fjögurra laga plötu, Ep útgáfu, með eigin lögum, sem hún stefnir á að komi út í apríl. Á morgun, laugardaginn 5. mars, kemur hún fram sem gestur á fjölskyldutónleikum með Svavari Knút í Akraneskirkju. Það er tónlistarhátíðin Heima-Skagi sem stendur fyrir þeim tónleikunum.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_51642\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-51642 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/03/Islensk-thjodlog-i-nyrri-QR_2-600x601.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"601\" /> Travel Tunes Iceland fjölskyldan; Sylvía, Þórður og Valgerður.[/caption]",
"innerBlocks": []
}