Fréttir

true

Leggja til nýja Breiðafjarðarferju og að Herjólfur taki við

Eyjólfur Ármannsson, ásamt öðrum þingmönnum Flokks fólksins, og þeim Bjarna Jónssyni (VG) og Ásmundi Friðrikssyni (D) fluttu í gær á Alþingi þinsályktunartillögu þar sem lagt er til að ríkið hefji nú þegar undirbúning fyrir kaup á nýrri Breiðafjarðarferju. Þar til ný ferja komi taki Herjólfur III við siglingum yfir fjörðinn. „Alþingi ályktar að fela innviðaráðherra…Lesa meira

true

Íslendingar fordæma innrás Rússa í Úkraínu

„Íslensk stjórnvöld fordæma harðlega víðtækar árásir rússneskra stjórnvalda á Úkraínu og lýsa harmi yfir þeirri eyðileggingu og þjáningu sem slík innrás óhjákvæmilega veldur,“ segir í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. „Hugur okkar er hjá því saklausa fólki sem verður fyrir barðinu á stríðsrekstri og ógnartilburðum Rússlands í Úkraínu. Ísland fordæmir harðlega ólögmæta innrás Rússlands í Úkraínu sem…Lesa meira

true

Hjólreiðafélag Vesturlands var stofnað á þriðjudaginn

Stofnfundur Hjólreiðafélags Vesturlands fór fram þriðjudaginn 22.02.2022 á Bara bar í Borgarnesi. Fundarstjóri var Helgi Guðmundsson og ritari Dagný Pétursdóttir og fylgdust 30 manns með fundinum inni á Live – útsendingu. Farið var yfir reglur og hlutverk félagsins, ungliðastarf, aðstöðu og æfingasvæði, þátttöku í keppnum og mögulegt keppnishald. Einnig var rætt um félagsgjald, inngöngu í…Lesa meira

true

Skaginn 3X verður hluti af Baader fjölskyldunni

Eins og kom fram í frétt Skessuhorns síðastliðinn mánudag hafa hluthafar í Skaganum 3X samþykkt að selja þýska fyrirtækið Baader allan eignarhlut sinn í fyrirtækinu, eða um 40%. Fyrir réttu ári var 60% hluturinn seldur. „Baader hefur nú þegar hafið samþættingu á starfsemi félaganna sem lýkur með því að Skaginn 3X verður hluti Baader samstæðunnar,“…Lesa meira

true

Suðaustan hvassviðri spáð á morgun

Enn ein óveðurslægðin nálgast landið og fer á morgun yfir. Gefin hefur verið út gul viðvörun fyrir allt vestan- og sunnanvert landið. Hér við Faxaflóa og Breiðafjörð er viðvörun í gildi frá því skömmu fyrir hádegi og fram undir kvöld. Það verður suðaustan stormur eða rok, 23-28 m/s og snarpar vindhviður við fjöll og slæmt…Lesa meira

true

Kristín Eir er Íþróttamaður Borgfirðings 2021

Fyrsta mótið í KB mótaröðinni hjá hestamannafélaginu Borgfirðingi fór fram í reiðhöllinni Faxaborg í Borgarnesi um liðna helgi. Keppt var í B flokki; 1. flokki, 2. flokki, ungmennaflokki, unglingaflokki, barnaflokki og pollaflokki. Einnig voru veittar viðurkenningar fyrir þrjá efstu í vali íþróttamanns hestamannafélagsins Borgfirðings fyrir árið 2021. Kristín Eir Hauksdóttir Holaker var valin íþróttamaður Borgfirðings…Lesa meira

true

Draumavertíð þrátt fyrir ótíð

Emil Freyr Emilsson skipstjóri á beitningarvélarbátnum Lilju SH, sem gerður er út frá Rifi, segir vertíðina núna vera sannkallaða draumavertíð, þrátt fyrir tíðarfarið. Þó er annars slagið farið í víking út á land. „Það er búið að vera algjört mok þegar gefið hefur á sjó,“ segir Emil. „Enginn róður hefur farið undir tíu tonnin og…Lesa meira

true

ÍATV hlýtur fjölmiðlaverðlaun KSÍ

Fulltrúar ÍATV á Akranesi tóku í dag við fjölmiðlaverðlaunum Knattspyrnusambands Íslands fyrir árið 2021. Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóra KSÍ, afhenti verðlaunin í höfuðstöðvum sambandsins í Laugardal. Í umsögn KSÍ segir m.a. að umhverfi beinna sjónvarpsútsendinga frá knattspyrnuleikjum hafi tekið stakkaskiptum á undanförnum árum og óhætt sé að segja að vefútsendingar, eða netstreymi, séu farnar að leika…Lesa meira

true

Næg verkefni fyrir smíðafyrirtæki á Akranesi

Fram kemur í Húsnæðisáætlun Akraneskaupstaðar fyrir árið 2022 að umtalsverð eftirspurn hefur verið eftir öllum tegundum íbúðarhúsnæðis í bæjarfélaginu og hefur Akraneskaupstaður átt í fullu fangi við við að mæta þeirri eftirspurn. Nú er staðan sú að metfjöldi íbúða er í byggingu og framundan er úthlutun eða sala á lóðum á Sementsreit, Dalbrautarreit og Skógarhverfi…Lesa meira