
Starfsstöð Skagans 3X á Akranesi sem brátt verður hluti af Baader fjölskyldunni.
Skaginn 3X verður hluti af Baader fjölskyldunni
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Eins og kom fram í frétt Skessuhorns síðastliðinn mánudag hafa hluthafar í Skaganum 3X samþykkt að selja þýska fyrirtækið Baader allan eignarhlut sinn í fyrirtækinu, eða um 40%. Fyrir réttu ári var 60% hluturinn seldur. „Baader hefur nú þegar hafið samþættingu á starfsemi félaganna sem lýkur með því að Skaginn 3X verður hluti Baader samstæðunnar,“ segir í tilkynningu frá fyrirtækinu vegna kaupanna á Skaganum 3X.\r\n\r\n„Fjárfestingin undirstrikar mikilvægi íslenska markaðarins fyrir Baader. Hátæknifyrirtækið Skaginn 3X og víðtæk sérfræðiþekking starfsfólks félagsins eru mikilvægir þættir í að styrkja stefnu Baader um alþjóðlegan vöxt. Samþætting einstaks þekkingargrunns fyrirtækjanna mun flýta fyrir allri þróun í uppsjávar- og hvítfiskvinnslu sem og í kælingu, afþíðingu, frystingu og annarri meðhöndlun á fiski, alifuglum, kjöti og annars iðnaðar.“\r\n\r\nÞá segir Robert Focke framkvæmdastjóri Baader í tilkynningunni að samhliða því að Skaginn 3X verði hluti af Baader, sé hægt að bjóða heildarlausnir fyrir allar sjávarafurðir. „Þetta eru sérstaklega góðar fréttir fyrir viðskiptavini okkar. Þeir mega búast við því að á skömmum tíma munum við geta boðið um allan heim samþætta tækniþekkingu okkar, vörur og þjónustu,“ segir Robert Focke. Petra Baader stjórnarformaður og eigandi Baader tekur í sama streng. „Við erum mjög ánægð með að bjóða Skaginn 3X velkominn í Baader fjölskylduna. Starfsfólk Skagans 3X býr yfir einstakri sérfræðiþekkingu og nýsköpunargetu sem mun stuðla að sameiginlegum árangri okkar til framtíðar,“ segir Petra Baader.\r\n\r\nLoks kemur fram í tilkynningu að Guðjón M. Ólafsson mun áfram stýra Skaganum 3X á Íslandi, studdur af Jóhönnu Waagfjörð fjármálastjóra, auk stjórnenda Baader. Jeffrey Davis, forstjóri ISEA Partners mun áfram gegna starfi stjórnarformanns Skagans 3X.",
"innerBlocks": []
}