
Emil Freyr Emilsson og Hannes Gunnar Guðmundsson, starfsmaður Fiskmarkaðar Íslands, að landa úr Liljunni. Ljósm. úr safni. Ljósm. af.
Draumavertíð þrátt fyrir ótíð
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Emil Freyr Emilsson skipstjóri á beitningarvélarbátnum Lilju SH, sem gerður er út frá Rifi, segir vertíðina núna vera sannkallaða draumavertíð, þrátt fyrir tíðarfarið. Þó er annars slagið farið í víking út á land. „Það er búið að vera algjört mok þegar gefið hefur á sjó,“ segir Emil. „Enginn róður hefur farið undir tíu tonnin og upp í 18 tonn á eina lögn. Ótrúlegur afli,“ segir Emil og brosir í kampinn. Hann bætir við að það er alveg sama hvar línan er lögð, það sé alls staðar mokveiði og lítil innistæða hjá Hafró að skera aflann svona niður. „Það væri nær að bæta í kvótann, eina sem hefur minnkað er að aflinn á löngu hefur minnkað aðeins hjá okkur, en ýsan hefur aukist töluvert, þótt við höfum reynt að forðast að fá hana, en það skiptir engu ýsan er alls staðar, en ýsukvótinn var skorinn niður um 20% fyrir vertíðina.\r\n\r\n„Þrátt fyrir fjölmargar vetrarlægðir með tilheyrandi ótíð og ekki marga róðra verðum við að fara að hægja á veiðunum til þess að klára kvóta bátsins ekki strax,“ segir Emil. Hann segir að í febrúar hafi meðalverð á þorski verið 390 krónur og meðalverð á ýsu er rétt um 440 krónur, en það hafi lækkað aðeins að undanförnu.\r\n\r\n<strong>Leigumarkaðurinn botnfrosinn</strong>\r\n\r\nÍ sama streng tekur Heiðar Magnússon útgerðarmaður og skipstjóri á línubátnum Brynju SH sem er gerð út frá Ólafsvík. „Það er algjört mok á miðunum í allan vetur og eins og allir vita miklar ógæftir. Engu að síður hefur verið meiri afli á hvern bala en undanfarin ár og gott verð á fiskmörkuðum framan af.“ Heiðar segir að vegna góðs afla og lægra verðs á mörkuðum hafi hann nú hægt á veiðunum og ekki róið á föstudögum og laugardögum. „Svo er leigumarkaðurinn botnfrosinn og erfitt að fá leigukvóta og ekki hægt að fá sporð af ýsukvóta. En eins og flestir línubátar reyni ég eftir fremsta megni að forðast að veiða ýsu. En ég hef reynt að vera á línuveiðum fram í maí undanfarin ár en verð sennilega að hætta línuveiðum fyrir þann tíma og reyna að fara eitthvað á ufsaveiðar á handfærum. Mér finnst að eigi að auka kvótann í ýsu og þorski frekar en að skerða hann svona mikið. Það er einfaldlega engin hemja að lækka þorskkvótann um 13% og svo ýsukvótann um 20%,“ segir Heiðar Magnússon að lokum.",
"innerBlocks": []
}