Leggja til nýja Breiðafjarðarferju og að Herjólfur taki við

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Eyjólfur Ármannsson, ásamt öðrum þingmönnum Flokks fólksins, og þeim Bjarna Jónssyni (VG) og Ásmundi Friðrikssyni (D) fluttu í gær á Alþingi þinsályktunartillögu þar sem lagt er til að ríkið hefji nú þegar undirbúning fyrir kaup á nýrri Breiðafjarðarferju. Þar til ný ferja komi taki Herjólfur III við siglingum yfir fjörðinn.\r\n\r\n„Alþingi ályktar að fela innviðaráðherra að láta kaupa nýja ferju sem verði notuð í reglulegum ferjusiglingum á Breiðafirði. Ferjan uppfylli nútímakröfur um öryggi og þægindi í farþegaflutningum og geti sinnt vöruflutningum fyrir atvinnulíf og íbúa á Vestfjörðum og við Breiðafjörð. Kannaðir verði möguleikar á að ferjan verði knúin með endurnýjanlegum orkugjöfum. Vegagerðin hafi virkt samráð við sveitarfélög á Vesturlandi og Vestfjörðum um hvaða kröfur ferjan skuli uppfylla. Þar til ný ferja verður tekin í notkun skuli nýta skipið Herjólf III, skráningarnúmer 2164, í reglulegum ferjusiglingum á Breiðafirði. Eins fljótt og auðið er, og eigi síðar en í júní 2022, skuli hefja framkvæmdir á hafnarmannvirkjum á ferjuleið til að tryggja að Herjólfur III geti tekið við ferjusiglingum sem fyrst,“ segir orðrétt í fyrstu grein tillögunnar.",
  "innerBlocks": []
}
Leggja til nýja Breiðafjarðarferju og að Herjólfur taki við - Skessuhorn