{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Enn ein óveðurslægðin nálgast landið og fer á morgun yfir. Gefin hefur verið út gul viðvörun fyrir allt vestan- og sunnanvert landið. Hér við Faxaflóa og Breiðafjörð er viðvörun í gildi frá því skömmu fyrir hádegi og fram undir kvöld. Það verður suðaustan stormur eða rok, 23-28 m/s og snarpar vindhviður við fjöll og slæmt ferðaveður. Talsverð slydda og síðar rigning þegar líður á daginn. Fólki er bent á að hreinsa frá niðurföllum til að forðast vatnstjón vegna rigningar og leysingavatns.",
"innerBlocks": []
}