Volodymyr Zelenskiy forseti Úkraínu heilsar hér upp á hermenn í framlínunni í Donetsk héraði. Ljósm. EPA

Íslendingar fordæma innrás Rússa í Úkraínu

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "„Íslensk stjórnvöld fordæma harðlega víðtækar árásir rússneskra stjórnvalda á Úkraínu og lýsa harmi yfir þeirri eyðileggingu og þjáningu sem slík innrás óhjákvæmilega veldur,“ segir í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.\r\n\r\n„Hugur okkar er hjá því saklausa fólki sem verður fyrir barðinu á stríðsrekstri og ógnartilburðum Rússlands í Úkraínu. Ísland fordæmir harðlega ólögmæta innrás Rússlands í Úkraínu sem á sér enga réttlætingu. Við krefjumst þess að Rússar stöðvi hernaðaraðgerðir sínar sem geta valdið miklum hörmungum. Árásin er alvarlegt brot á alþjóðalögum og kallar á hörð viðbrögð frá alþjóðasamfélaginu,” segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.\r\n\r\n„Stríðsrekstur Rússa í Úkraínu er raunveruleg ógn við öryggi í Evrópu. Við stöndum staðfastlega með okkar bandalagsríkjum og nánustu samstarfsríkjum og tökum fullan þátt í víðtækum þvingunaraðgerðum sem verða útfærðar í dag og á morgun. Ísland hefur lýst algjörum stuðningi við Úkraínu og fordæmir innrás gegn löghelgi landamæra þeirra. Við tökum heilshugar undir kröfu um að Pútín Rússlandsforseti dragi herlið sitt tafarlaust frá Úkraínu,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra.",
  "innerBlocks": []
}
Íslendingar fordæma innrás Rússa í Úkraínu - Skessuhorn