Þrír af fimm í fyrstu stjórn nýstofnaðs Hjólreiðafélags Vesturlands. Frá vinstri: Dagný Pétursdóttir, Guðríður Hlíf og Haukur Erlingsson.

Hjólreiðafélag Vesturlands var stofnað á þriðjudaginn

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Stofnfundur Hjólreiðafélags Vesturlands fór fram þriðjudaginn 22.02.2022 á Bara bar í Borgarnesi. Fundarstjóri var Helgi Guðmundsson og ritari Dagný Pétursdóttir og fylgdust 30 manns með fundinum inni á Live - útsendingu. Farið var yfir reglur og hlutverk félagsins, ungliðastarf, aðstöðu og æfingasvæði, þátttöku í keppnum og mögulegt keppnishald. Einnig var rætt um félagsgjald, inngöngu í Hjólreiðafélag Íslands (HFÍ), styrki við stofnun félagsins, merktan fatnað og merki félagsins.\r\n\r\nKosið var í stjórn félagsins á fundinum og hana skipa eftirfarandi: Guðríður Hlíf Sigfúsdóttir formaður, Dagný Pétursdóttir, Haukur Erlingsson, Reynir Georgsson og Ragnar Ingi Sigurðsson. Varamenn eru Guðgeir Guðmundsson og Níels Hermannsson. Þá fékk Þorsteinn Eyþórsson sérstakt hrós fyrir að vera sá eini sem kom hjólandi á fundinn.\r\n\r\nÍ viðtali við Skessuhorn um miðjan febrúar sagði Guðríður Hlíf að helstu markmiðin með stofnun félagsins væru að fá fleiri iðkendur í sportið, auka aðstöðu til hjólreiða bæði innanhúss og utandyra og einnig að auka fræðslu, halda námskeið, bæta við hjólaleiðum og þar fram eftir götum. „Það eru fullt af skemmtilegum leiðum hérna í kring og viljum við gera þær enn betri og bæta við leiðum. Okkur langar líka að kynna svæðið okkar hérna á Vesturlandi og fá fólk til að staldra lengur við heldur en bara í sjoppunum. Til dæmis í Borgarnesi, þá sérðu fullt af fólki með hjól á þakinu keyra hérna í gegnum bæinn, en það er ekkert að koma hingað til að hjóla heldur frekar fer það norður eða eitthvað álíka. En ef upplýsingar um hjólaleiðir yrðu aðgengilegri, þá myndi það kannski stoppa aðeins lengur við í bænum.“",
  "innerBlocks": []
}
Hjólreiðafélag Vesturlands var stofnað á þriðjudaginn - Skessuhorn