Klara Bjartmarz framkvæmdastjóri KSÍ ásamt fulltrúum ÍA TV. F.v. þeim Ingimar Elfari Ágústssyni, Erni Arnarsyni, Arnari Óðni Arnþórssyni, Birni Þór Björnssyni og Snorra Kristleifssyni. Ljósm. ksi.is

ÍATV hlýtur fjölmiðlaverðlaun KSÍ

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Fulltrúar ÍATV á Akranesi tóku í dag við fjölmiðlaverðlaunum Knattspyrnusambands Íslands fyrir árið 2021. Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóra KSÍ, afhenti verðlaunin í höfuðstöðvum sambandsins í Laugardal.\r\n\r\nÍ umsögn KSÍ segir m.a. að umhverfi beinna sjónvarpsútsendinga frá knattspyrnuleikjum hafi tekið stakkaskiptum á undanförnum árum og óhætt sé að segja að vefútsendingar, eða netstreymi, séu farnar að leika stórt hlutverk. Mörg knattspyrnufélög eða stuðningsmannahópar þeim tengdir hafi stigið það skref að sýna beint frá sínum leikjum á eigin miðlum sem sé góð og verðmæt þjónusta við stuðningsmenn, sér í lagi á Covid-tímum þar sem ekki hafi verið sjálfsagt að stuðningsmenn geti mætt á völlinn. ÍATV, sem sé einmitt stýrt og rekið af hópi stuðningsmanna ÍA, hafi staðið þar framarlega.\r\n\r\nMeðal þeirra sem hlotið hafa fjölmiðlaverðlaun KSÍ eru Íþróttadeild RÚV, Sjónvarp Símans, SportTV, Hörður Magnússon fótboltafréttamaður og Hafliði Breiðfjörð.\r\n\r\nÖrn Arnarson, einn forsprakka ÍATV hafði þetta að segja eftir afhendingu verðlaunanna: „Það er fyrst og fremst gríðarlegur heiður sem okkur er sýndur með þessum verðlaunum. Um allt land eru ótal aðilar eins og við að sýna beint frá íþróttalífinu í sínu nærumhverfi og um leið að skrásetja íþróttasöguna. Við lítum á þessi verðlaun sem viðurkenningu á því að þetta starf er þarft, það er mikilvægt og mikils metið. Þetta er okkur mikil hvatning til þess að halda áfram að verða betri, en um leið hlýtur þetta að verða öllum hinum sem sinna viðlíka verkefnum hvatning, því þessi verðlaun eru í raun fyrir okkur öll sem stöndum í þessu.“\r\n\r\n<strong>Á þriðja hundrað útsendingar</strong>\r\n\r\nÍATV er netsjónvarpsstöð sem starfrækt er af sjálfboðaliðum og sendir út á YouTube. Stöðin er stutt af Íþróttabandalagi Akraness auk þess sem velunnarar hafa lagt ÍATV lið með frjálsum framlögum. Fyrstu útsendingar ÍATV fóru í loftið með frumstæðum hætti í nóvember 2015. Síðan þá hefur stöðin hægt en markvisst sótt í sig veðrið með vönduðum og faglega metnaðarfullum útsendingum frá margvíslegum viðburðum, þó mest frá meistaraflokksleikjum Knattspyrnufélags ÍA í karla- og kvennaflokki, sem og leikjum Knattspyrnufélagsins Kára. Sérfræðingar ÍATV hafa einnig valið og verðlaunað bestu og efnilegustu leikmenn ársins hjá ÍA og Kára. Útsendingar ÍATV frá knattspyrnuleikjum eru í dag orðnar á þriðja hundraðið.\r\n\r\nÍATV hefur m.a. sýnt leiki í Unglingadeild Knattspyrnusambands Evrópu (UEFA Youth League), Inkasso-deildinni, Lengju-deildinni, Mjólkurbikarnum og Fótbolta.net-mótinu. Áhorfendur stöðvarinnar eru í Evrópu, Suður- og Norður Ameríku, Afríku, Asíu og Ástralíu. Áskrifendur eru um tvö þúsund og heildaráhorf er komið yfir 430 þúsund.\r\n\r\nÍATV hefur ekki eingöngu sent út fótboltaleiki heldur einnig körfubolta, fimleika, golf, keilu, klifur, badminton, amerískan fótbolta, Norðurálsmótið og val á íþróttamanni ársins hjá ÍA. Jafnframt má nefna fimm þátta skemmtiþáttaröðina Að koma saman er bannað sem gerð var 2020, spennuþrungna maraþonútsendingu frá sprengingu og fellingu sementsstrompsins 2019 – sem horft hefur verið á um 50 þúsund sinnum og myndklippu sem fór á flakk um heiminn af glæsimarki Arnars Más Guðjónssonar sumarið 2018, sem yfir tvær milljónir hafa notið.\r\n\r\nAllar útsendingar, upptökur og samantektir ÍATV eru aðgengilegar á iatv.is og YouTube og eru ókeypis.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_51422\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-51422 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/02/IATV-hlytur-fjolmidlaverdlaun-KSI_2-600x450.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"450\" /> Björn Þór og Örn eru hér að senda út frá Norðurálsmótinu í knattspyrnu. Ljósm. úr safni Skessuhorns.[/caption]",
  "innerBlocks": []
}
ÍATV hlýtur fjölmiðlaverðlaun KSÍ - Skessuhorn