
default
Næg verkefni fyrir smíðafyrirtæki á Akranesi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Fram kemur í Húsnæðisáætlun Akraneskaupstaðar fyrir árið 2022 að umtalsverð eftirspurn hefur verið eftir öllum tegundum íbúðarhúsnæðis í bæjarfélaginu og hefur Akraneskaupstaður átt í fullu fangi við við að mæta þeirri eftirspurn. Nú er staðan sú að metfjöldi íbúða er í byggingu og framundan er úthlutun eða sala á lóðum á Sementsreit, Dalbrautarreit og Skógarhverfi sem er að mæta betur uppsafnaðri þörf. Eftirspurn er mikil eftir húsnæði á höfuðborgarsvæðinu sem hefur ekki verið mætt og hefur það haft þau áhrif að eftirspurn er búin að færast til nágrannasveitarfélaganna. Akranes er því bæði að þjóna innri vaxtarþörf sem er tilkomin vegna eðlilegrar stækkunar bæjarins sem og ytri vaxtarþörf sem er tilkomin vegna skorts af öðrum svæðum, sem og vegna sóknar í atvinnumálum.\r\n\r\nSamhliða uppbyggingu almennra íbúða er unnið eftir aðgerðaráætlun um uppbyggingu húsnæðis fyrir ákveðna hópa eins og fatlaða og aldraða. Gert er ráð fyrir byggingu fjögurra íbúðakjarna fyrir fatlaða á næstu árum á Akranesi. Fyrsti búsetukjarninn kemur til vegna tilflutnings á húsnæði fatlaðra innan bæjarins en aðrir eru til að mæta fyrirsjáanlegri þörf á næstu árum fyrir íbúðir fatlaðra. Í uppbyggingu fyrir aldraða er fjölbýlishús með samtals 31 íbúð í samstarfi við Leigufélag aldraða sem er ætlað að mæta þörf fyrir öruggt leiguhúsnæði fyrir eldri borgara. Það hús er að rísa við Dalbraut 6, við hlið þjónustumiðstöðvar aldraða á Dalbraut 4.\r\n\r\nSkortur hefur verið á öruggu leiguhúsnæði á Akranesi fyrir fólk með lágar- og millitekjur og hefur verið ráðist í uppbyggingu í samstarfi við Bjarg húsnæðisfélag á 24 íbúðum á Asparskógum 3. Þá er fyrirhugað að selja hluta þeirra eigna sem Akraneskaupstaður á sem hafa verið félagslegar leiguíbúðir og bjóða fólki önnur búsetuúrræði. Skessuhorn heyrði í nokkrum byggingafyrirtækjum á Akranesi til að skoða stöðuna á markaðinum, hver helstu verkefnin hafi verið síðustu mánuði og hvernig verkefnastaðan liti út á þessu ári.\r\n\r\n<em>Í Skessuhorni sem kom út í dag er rætt við fulltrúa fjögurra byggingafyrirtækja á Akranesi sem sannarlega hafa næg verkefni framundan, eru jafnvel farnir að bóka verkefni fyrir næsta ár.</em>",
"innerBlocks": []
}