
Fulltrúar ÍATV á Akranesi tóku í dag við fjölmiðlaverðlaunum Knattspyrnusambands Íslands fyrir árið 2021. Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóra KSÍ, afhenti verðlaunin í höfuðstöðvum sambandsins í Laugardal. Í umsögn KSÍ segir m.a. að umhverfi beinna sjónvarpsútsendinga frá knattspyrnuleikjum hafi tekið stakkaskiptum á undanförnum árum og óhætt sé að segja að vefútsendingar, eða netstreymi, séu farnar að leika…Lesa meira








