Fréttir

true

Jöfnunarsjóður veitir framlög vegna samþættingar þjónustu í þágu barna

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra hefur í samráði við Ásmund Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, undirritað reglugerð um framlög á vegum Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til að mæta kostnaði sveitarfélaga vegna samþættingar þjónustu í þágu farsældar barna á árinu 2022. Frá þessu segir á vef Stjórnarráðs Íslands. Ráðherra hefur einnig samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs um áætluð framlög til…Lesa meira

true

Könnun um heilsu og lífskjör skólanema

Mennta- og menningarmálaráðuneytið, með aðkomu félagsmálaráðuneytisins, hefur falið Menntavísindasviði Háskóla Íslands að framkvæma æskulýðsrannsóknir á tímabilinu 2021-2026 samkvæmt æskulýðslögum nr. 70/2007. Á næstunni er ráðgert að leggja könnun fyrir grunnskólabörn í 4., 6., 8. og 10. bekk á Íslandi. Könnunin nefnist Heilsa og lífskjör skólanema 2022 (HBSC, Health Behaviour in School-aged Children) og er ein…Lesa meira

true

Framkvæmdir ganga vel í Brekkubæjarskóla

Í bréfi skólastjórnenda í Brekkubæjarskóla á Akranesi til foreldra eru þeir upplýstir um stöðu mála varðandi húsnæði skólans eftir bruna sem þar varð í janúar. Kemur fram að hreinsun og viðgerðir á fyrstu hæð skólans gangi vel. Búið er að mála og rykbinda loftin og plöturnar í kerfisloftinu verða settar í á næstu dögum. Þá…Lesa meira

true

Fjöliðjan fær bifreið með lyftu

Á fundi bæjarráðs Akraness síðastliðinn þriðjudag var tekið fyrir erindi sviðsstjóra velferðar- og mannréttindasviðs og forstöðumanns Fjöliðjunnar varðandi heimild til kaupa, eða leigu, á bifreið með lyftu fyrir hjólastóla fyrir starfsemi Fjöliðjunnar. Bifreiðarnar sem eru til staðar í dag anna ekki verkefnum og möguleg staðgengilsbifreið sem er með rampi en ekki lyftu er ekki nýtanleg…Lesa meira

true

Tæplega 200 skráðir gróðureldar á seinasta ári

Á síðustu árum hefur hættan á gróðureldum aukist talsvert hér á landi m.a. vegna breytinga í veðurfari, vaxandi gróðursældar, minnkandi búfjárbeitar og fleiri þátta. Samkvæmt tölfræði Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) eru gróðureldar orðnir stór áhættuþáttur í náttúrunni hér á landi, enda geta þeir valdið miklu eigna- og manntjóni og geta skaðað mikilvæga innviði. Á meðfylgjandi…Lesa meira

true

Töluverð snjóflóðahætta er víða – fjallgöngufólk varað við

Töluvert hefur snjóað í fjöll að undanförnu og á það bæði við um höfuðborgarsvæðið og á landsbyggðinni. Slysavarnafélagið Landsbjörg vill benda göngufólki á að í mörgum heimafjöllum við þéttbýli, eins og t.d. Esjunni, kann að skapast töluverð snjóflóðahætta. Göngufólki sem ætlar að nýta sér gott veður til útivistar er bent á að halda sig við…Lesa meira

true

Auglýsa eftir styrk- og lánaumsóknum frá konum

Atvinnumál kvenna auglýsir nú eftir styrkumsóknum og Svanni lánatryggingasjóður kvenna auglýsir eftur lánsumsóknum frá konum. Í auglýsingu sem birtist í Skessuhorni í gær kemur fram að Atvinnumál kvenna veitir styrki fyrir konur með góða viðskiptahugmynd eða til verkefna innan fyrirtækja í meirihlutaeigu kvenna. Opið verður fyrir styrkumsóknir til og með 3. mars næstkomandi og eru…Lesa meira

true

Fyrirtæki á höttunum eftir starfsfólki

Í Skessuhorni vikunnar eru nokkur störf í landshlutanum auglýst laus til umsóknar. Meðal annars vantar Húsasmiðjunni í Borgarnesi umsóknir um verslunarstörf. Klafi á Grundartanga auglýsir eftir starfsmönnum til afleysinga í sumar og hjá Rarik í Borgarnesi vantar rafvirkja til starfa.  Vegagerðin er sömuleiðis á höttunum eftir starfsmönnum í Borgarnesi og Ólafsvík. Í Borgarnesi eru tvö…Lesa meira

true

Á hrakhólum með húsnæði

Á fundi bæjarráðs Akraness á þriðjudaginn var rætt um æfingaaðstöðu Kraftlyftingafélags og Hnefaleikafélags Akraness en vegna slæmra loftgæða og myglu í kjallara íþróttahússins á Vesturgötu eru félögin á hrakhólum þessa dagana. Unnið hefur verið að lausn málsins og samþykkti bæjarráð að veita viðbótarfjármagni, rúmlega 1,5 milljón króna, til leigu á rými til afnota fyrir Kraftlyfinga-…Lesa meira

true

Aukaferðir Baldurs á næstu dögum

Að beiðni Vesturbyggðar og Tálknafjarðar hafa verið settar á aukaferðir nokkra daga, frá Stykkishólmi kl. 9:00 og frá Brjánslæk kl. 12:00. Þessar ferðir verða sunnudaginn 20. febrúar, miðvikudaginn 23. febrúar, fimmtudaginn 24. febrúar, sunnudaginn 27. febrúar, miðvikudaginn 2. mars og fimmtudaginn 3. mars. Seinni ferð ofangreinda daga er samkvæmt áætlun kl. 15:00 frá Stykkishólmi og…Lesa meira