Könnun um heilsu og lífskjör skólanema

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Mennta- og menningarmálaráðuneytið, með aðkomu félagsmálaráðuneytisins, hefur falið Menntavísindasviði Háskóla Íslands að framkvæma æskulýðsrannsóknir á tímabilinu 2021-2026 samkvæmt æskulýðslögum nr. 70/2007. Á næstunni er ráðgert að leggja könnun fyrir grunnskólabörn í 4., 6., 8. og 10. bekk á Íslandi. Könnunin nefnist Heilsa og lífskjör skólanema 2022 (HBSC, Health Behaviour in School-aged Children) og er ein viðamesta rannsókn samtímans á sviði heilsu og heilsutengdrar hegðunar ungs fólks. Könnunin hefur verið lögð fyrir grunnskólabörn á fjögurra ára fresti í um 50 löndum í Evrópu og Norður Ameríku. Á Íslandi hefur könnunin verið framkvæmd frá árinu 2006 en heilsuvísar og samanburður alþjóðasamtaka fyrir börn og ungmenni hvíla að miklu leyti á niðurstöðum úr könnuninni.\r\n\r\nViðfangsefni rannsóknarinnar eru víðtæk en meðal annars er spurt um viðhorf til skólans, um lífsstíl, næringu, hreyfingu, tómstundir, óhöpp, tannhirðu, líðan, félagsleg tengsl og umhverfi nemenda, auk þess sem spurt er um nokkra lífsstílstengda áhættuþætti. Þátttaka sem flestra barna er afar mikilvæg til að ná sem áreiðanlegustu niðurstöðum þar sem rannsóknin eflir og styrkir til muna störf fræðimanna og stofnana sem vinna að forvörnum meðal ungmenna á Íslandi.\r\n\r\nÞátttaka nemenda er valkvæð og foreldrar/forsjáraðilar þeirra geta hafnað þátttöku. Könnunin er ópersónugreinanleg og verður lögð fyrir á rafrænu formi í kennslustofunni meðan á skólatíma stendur. Siðanefnd háskólanna um vísindarannsóknir hefur fjallað um efni og framkvæmd rannsóknarinnar og gerir ekki athugasemdir.\r\n\r\nÁætluð tímasetning fyrirlagnar er frá febrúar til mars 2022, nánari tímasetning fer eftir samkomulagi við stjórnendur hvers skóla. Tengiliður í skólanum mun upplýsa nemendur um að könnunin sé ópersónugreinanleg og að nemendum sé ekki skylt að taka þátt, svara einstökum spurningum sem þeir eiga erfitt með að svara eða vilja sleppa og hætt hvenær sem er.",
  "innerBlocks": []
}
Könnun um heilsu og lífskjör skólanema - Skessuhorn