Töluverð snjóflóðahætta er víða – fjallgöngufólk varað við
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Töluvert hefur snjóað í fjöll að undanförnu og á það bæði við um höfuðborgarsvæðið og á landsbyggðinni. Slysavarnafélagið Landsbjörg vill benda göngufólki á að í mörgum heimafjöllum við þéttbýli, eins og t.d. Esjunni, kann að skapast töluverð snjóflóðahætta. Göngufólki sem ætlar að nýta sér gott veður til útivistar er bent á að halda sig við merktar gönguleiðir og/eða hafa með í för þekkingu á mati á snjóflóðahættu, snjóflóðaýli, skóflu og stöng,“ segir í tilkynningu frá Landsbjörgu.\r\n\r\nBent er á að hægt er að afla upplýsinga um aðstæður til dæmis á safetravel.is og snjóflóðasíðum Veðurstofunnar; vedur.is",
"innerBlocks": []
}
Töluverð snjóflóðahætta er víða - fjallgöngufólk varað við - Skessuhorn