{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Á fundi bæjarráðs Akraness síðastliðinn þriðjudag var tekið fyrir erindi sviðsstjóra velferðar- og mannréttindasviðs og forstöðumanns Fjöliðjunnar varðandi heimild til kaupa, eða leigu, á bifreið með lyftu fyrir hjólastóla fyrir starfsemi Fjöliðjunnar. Bifreiðarnar sem eru til staðar í dag anna ekki verkefnum og möguleg staðgengilsbifreið sem er með rampi en ekki lyftu er ekki nýtanleg öllum þjónustuþegum þar sem sumir hjólastólarnir eru einfaldlega of þungir til að ýta upp hjólastólarampinn. Bæjarráð samþykkti að ráðist verði í að leigja sérútbúna bifreið með lyftu fyrir hjólastóla fyrir starfsemi Fjöliðjunnar en málið mun koma að nýju til bæjarráðs þegar fyrir liggur mögulegt leiguverð.",
"innerBlocks": []
}