{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Atvinnumál kvenna auglýsir nú eftir styrkumsóknum og Svanni lánatryggingasjóður kvenna auglýsir eftur lánsumsóknum frá konum. Í auglýsingu sem birtist í Skessuhorni í gær kemur fram að Atvinnumál kvenna veitir styrki fyrir konur með góða viðskiptahugmynd eða til verkefna innan fyrirtækja í meirihlutaeigu kvenna. Opið verður fyrir styrkumsóknir til og með 3. mars næstkomandi og eru frumkvöðlakonur á landsbyggðinni sérstaklega hvattar til að sækja um. Svanni lánatryggingasjóður kvenna veitir lán með lánatryggingum til fyrirtækja í meirihlutaeigu kvenna. „Lán eru veitt til starfandi fyrirtækja og til verkefna sem skapa atvinnu og auka verðmæti í fyrirtækjum,“ segir í auglýsingunni í Skessuhorni. Opið er fyrir umsóknir til og með 15. mars næstkomandi. Nánari upplýsingar um bæði styrki og lán má finna á vefsíðunni atvinnumalkvenna.is en þar er einnig tekið við öllum umsóknum.",
"innerBlocks": []
}
Auglýsa eftir styrk- og lánaumsóknum frá konum - Skessuhorn