Framkvæmdir ganga vel í Brekkubæjarskóla

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í bréfi skólastjórnenda í Brekkubæjarskóla á Akranesi til foreldra eru þeir upplýstir um stöðu mála varðandi húsnæði skólans eftir bruna sem þar varð í janúar. Kemur fram að hreinsun og viðgerðir á fyrstu hæð skólans gangi vel. Búið er að mála og rykbinda loftin og plöturnar í kerfisloftinu verða settar í á næstu dögum. Þá er einnig verið að gera við þakið yfir salnum en dúkurinn þar var farinn að leka. Þegar farið var að hrófla við dúknum varð mikill leki á svæðinu fyrir framan salinn og uppi á sviðinu. Ekki hefur verið hægt að fara með nemendur inn í salinn vegna þessa. Um leið og salurinn og svæðið þar fyrir framan er komið í nothæft horf og nemendur geta gengið þar um verður mötuneytið opnað að nýju. Jafnframt mun brauðsalan sem tíundi bekkur rekur og setustofa unglinga opna á sama tíma.\r\n\r\nÞá segir einnig að framkvæmdum fari að ljúka á annarri og þriðju hæð skólans. Þar var skipt um allar plötur í kerfisloftum og ný lýsing sett í stofur og á ganga. Allt svæðið var málað og nýjar gardínur settar upp. Öll salerni og ræstiherbergi voru tekin í gegn, skipt um klæðningar á veggjum og ný hreinlætistæki sett alls staðar.\r\n\r\nBæjarráð samþykkti á fundi sínum 10. febrúar síðastliðinn að haldið verði áfram vinnu vegna mögulegra breytinga á fyrstu hæð skólans.",
  "innerBlocks": []
}
Framkvæmdir ganga vel í Brekkubæjarskóla - Skessuhorn