Séð inn í rýmið sem félögin fá brátt til afnota. Ljósm. vaks.

Á hrakhólum með húsnæði

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Á fundi bæjarráðs Akraness á þriðjudaginn var rætt um æfingaaðstöðu Kraftlyftingafélags og Hnefaleikafélags Akraness en vegna slæmra loftgæða og myglu í kjallara íþróttahússins á Vesturgötu eru félögin á hrakhólum þessa dagana. Unnið hefur verið að lausn málsins og samþykkti bæjarráð að veita viðbótarfjármagni, rúmlega 1,5 milljón króna, til leigu á rými til afnota fyrir Kraftlyfinga- og hnefaleikafélag Akraness til eins árs.\r\n\r\nRýmið sem um ræðir er á Þjóðbraut 13a í sama húsnæði og Pollur Bílaþvottur er til húsa, en það er tæplega 70 fermetrar. Pollur bílaþvottur hyggst flytja síðar í þessum mánuði yfir götuna og koma sér fyrir í nýju húsnæði sem er staðsett við hliðina á Tölvuþjónustunni við Esjubraut.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_51184\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-51184 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/02/A-hrakholum-med-husnaedi2-600x450.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"450\" /> Pollur Bílaþvottur flytur inn í bilið sem er næst á myndinni.[/caption]",
  "innerBlocks": []
}
Á hrakhólum með húsnæði - Skessuhorn