Fréttir

true

Kosið um sameiningu á laugardaginn

Næstkomandi laugardag ganga íbúar tveggja sveitarfélaga á Snæfellsnesi til kosninga um sameiningu þeirra, þ.e. Snæfellsbæjar og Eyja- og Miklaholtshrepps. Töluverðrar eftirvæntingar gætir um niðurstöðuna. Á kjörskrá í Snæfellsbæ eru 1.174 og í Eyja- og Miklaholtshreppi 83. Íbúar í Eyja- og Miklaholtshreppi kjósa í íþróttasal Laugargerðisskóla en kjörstaðir verða þrír í Snæfellsbæ. Á öllum stöðum er…Lesa meira

true

Kaj Leo genginn í raðir ÍA

Knattspyrnumaðurinn Kaj Leo í Bartalsstovu hefur gengið til liðs við Skagamenn frá Val Reykjavík. Kaj Leo er þrítugur kantmaður og landsliðsmaður frá Færeyjum. Hann hefur spilað á Íslandi frá árinu 2016, fyrst með FH þar sem hann lék 7 leiki og síðan næstu tvö tímabil með ÍBV en þar lék hann 41 leik og skoraði…Lesa meira

true

Mynduðu Kirkjufellið með filmuvél

Á fimmtudaginn í liðinni viku rakst fréttaritari á tvo ljósmyndara frá Búlgaríu þar sem þeir voru að mynda Kirkjufell á Snæfellsnesi. Þegar þeir voru spurðir af hverju þeir væru með svona gamaldags myndavél, hlógu þeir dátt, en sögðu að myndavélin væri hreint ekki gömul, en þetta er filmuvél og þannig vildu þeir hafa það. Sögðust…Lesa meira

true

Annasamur dagur í sjúkraflutningum

Miklar annir voru í sjúkraflutningum á Vesturlandi á mánudaginn og átti veður og færð eftir að hafa veruleg áhrif á störf sjúkraflutningafólks. Þórður Guðnason, yfirmaður sjúkraflutninga hjá HVE, segir í samtali við Skessuhorn að verkefnin hafi byrjað snemma dags, en klukkan fjögur um nóttina þurfti að sækja sjúkling í Rif í „stjörnuvitlausu veðri,“ eins og…Lesa meira

true

Myndarleg snjóhengja á ráðhúsi

Það má með sanni segja að snjóflóðahætta er almennt lítil á Akranesi. Engu að síður mega gangandi vegfarendur sem eiga leið framhjá stjórnsýsluhúsinu við Stillholt hafa varann á, ef marka má þessa snjóhengju sem skriðin er af stað ofan af húsþaki. Myndina tók glöggur íbúi í morgun, en sá býr í háhýsi gegnt ráðhúsinu.Lesa meira

true

„Ég hef verið umvafin tónlist allt mitt líf“

Guðríður Ringsted eða „Mystic Manta“ gaf út sína fyrstu sóló plötu 30. janúar síðastliðinn. Guðríður, eða Dúdda eins og flestir kalla hana, starfar sem hjúkrunarfræðingur á Brákarhlíð í Borgarnesi en á að baki áhugaverðan tónlistarferil með Worm Is Green þar sem hún var söngkona hljómsveitarinnar og fór meðal annars í tónleikaferðalög um Bandaríkin og Kína.…Lesa meira

true

„Snýst ekki bara um lambakjöt og mjólk“

Dalamaðurinn Steinþór Logi Arnarsson frá Stórholti í Saurbæ tók á dögunum við sem formaður Samtaka ungra bænda af Guðmundi Bjarnasyni í Túni á aðalfundi samtakanna. Auk Steinþórs eru nú í stjórn Samtaka ungra bænda þau Þórunn Dís Þórunnardóttir, Þuríður Lilja Valsdóttir, Ísak Jökulsson og Jónas Davíð Jónasson. Skessuhorn heyrði í Steinþóri Loga og segir hann…Lesa meira

true

Listamenn koma saman í Listahúsi í Borgarnesi

Laugardaginn 26. febrúar verður sýning í Listahúsi Michelle Bird við Sæunnargötu 12 í Borgarnesi. Sýningin er partur af sýningaröð þar sem Michelle mun setja upp sýningar með gestalistamönnum síðasta laugardag hvers mánaðar fram í júní. Sýningin verður opin frá klukkan 12 til 15 og boðið verður upp á lifandi tónlist, ljósmyndir og málverk en auk…Lesa meira

true

Giljaböðin í hópi 14 bestu ferðaupplifana í heimi

Giljaböð á Húsafelli hafa verið útnefnd af bókunarvefnum Culture Trip sem ein besta ferðaupplifun fyrir árið 2022, eða; „The World’s Greatest Travel Experiences for 2022.“ Er þetta mikill gæðastimpill fyrir böðin þar sem aðeins 14 staðir í heiminum fá þessa útnefningu hverju sinni og það eru sérfræðingar í ferðaþjónustu sem sjá um að velja staðina.…Lesa meira

true

Fjöliðjan flytur tímabundið í nýtt húsnæði

Á fundi Bæjarráðs Akraness í gær var samþykkt að gera leigusamning við Línuvélar ehf. um húsnæði fyrir Fjöliðjuna að Smiðjuvöllum 28. Samningurinn verður til þriggja ára, vegna tímabilsins 1. maí 2022 til og með 28. febrúar 2025. Var bæjarstjóra falin frekari úrvinnslu málsins og undirritun samnings. Fjöliðjan hefur verið með starfsemi sína í leiguhúsnæði hjá…Lesa meira