{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Á fimmtudaginn í liðinni viku rakst fréttaritari á tvo ljósmyndara frá Búlgaríu þar sem þeir voru að mynda Kirkjufell á Snæfellsnesi. Þegar þeir voru spurðir af hverju þeir væru með svona gamaldags myndavél, hlógu þeir dátt, en sögðu að myndavélin væri hreint ekki gömul, en þetta er filmuvél og þannig vildu þeir hafa það. Sögðust þeir vera búnir að koma reglulega til landsins undanfarin tíu ár til að mynda og skoða sig um.",
"innerBlocks": []
}