{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Næstkomandi laugardag ganga íbúar tveggja sveitarfélaga á Snæfellsnesi til kosninga um sameiningu þeirra, þ.e. Snæfellsbæjar og Eyja- og Miklaholtshrepps. Töluverðrar eftirvæntingar gætir um niðurstöðuna. Á kjörskrá í Snæfellsbæ eru 1.174 og í Eyja- og Miklaholtshreppi 83. Íbúar í Eyja- og Miklaholtshreppi kjósa í íþróttasal Laugargerðisskóla en kjörstaðir verða þrír í Snæfellsbæ. Á öllum stöðum er kosið frá klukkan 10 til 18. Í Snæfellsbæ verður kosið í grunnskólahúsunum í Ólafsvík, á Hellissandi og á Lýsuhóli. Rétt til að kjósa hafa allir 18 ára og eldri sem eru á kjörskrá í viðkomandi sveitarfélagi.\r\n\r\nTalning atkvæða fer fram á laugardagskvöldið, annars vegar í íþróttahúsi Laugargerðisskóla og hins vegar í Grunnskólanum í Ólafsvík og hefst eftir að kjörstöðum hefur verið lokað og búið að stemma af kjörgögn. Verða atkvæði talin og úrslit birt í hvoru sveitarfélagi fyrir sig og á vefnum snaefellingar.is síðar á laugardagskvöldið.",
"innerBlocks": []
}