{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Giljaböð á Húsafelli hafa verið útnefnd af bókunarvefnum Culture Trip sem ein besta ferðaupplifun fyrir árið 2022, eða; „The World’s Greatest Travel Experiences for 2022.“ Er þetta mikill gæðastimpill fyrir böðin þar sem aðeins 14 staðir í heiminum fá þessa útnefningu hverju sinni og það eru sérfræðingar í ferðaþjónustu sem sjá um að velja staðina.\r\n\r\nCulture Trip er með nærri sjö milljónir fylgjenda á Facebook og því margir sem koma til með að sjá útnefninguna. Í frétt á vef Culture Trip er sagt hvernig hægt er að slaka á í Giljaböðum og um leið njóta fegurðarinnar þar í kring en áhersla er lögð á að böðin og aðstaðan falli vel inn í umhverfið.\r\n\r\n ",
"innerBlocks": []
}