Fréttir

true

Flosi og Forkur sigruðu slaktaumatöltið

Borgfirðingurinn Flosi Ólafsson og Forkur frá Breiðabólsstað léku á alls oddi í úrslitum í slaktaumatölti í meistaradeildinni í hestaíþróttum síðastliðinn fimmtudag. Flosi og Forkur voru í fjórða sæti eftir forkeppnina með einkunnina 7,70 en þeir komu sterkir inn í úrslitum og sigruðu örugglega með einkunnina 8,21. Flosi sagði í samtali við Huldu Geirsdóttur að keppni…Lesa meira

true

Skautasvell og gönguskíðabraut í Stykkishólmi

Síðastliðinn laugardag, 12. febrúar, gerðu þau Magnús Ingi Bæringsson æskulýðs- og tómstundafulltrúi Stykkishólmsbæjar og Sigríður Ólöf Sigurðardóttir sér lítið fyrir og sópuðu snjó af svellinu við flugstöðina í Stykkishólmi. Fjöldinn allur af Hólmurum nýtti tækifærið og dustaði rykið af skautunum í kjölfarið en frá þessu er sagt á vefsíðu Stykkishólmsbæjar. Nú geta gönguskíðagarpar í Stykkishólmi…Lesa meira

true

Gleðiskruddurnar heimsóttu Reykhólaskóla

Þær Yrja Kristinsdóttir og Marit Davíðsdóttir komu vestur í Reykhólaskóla í vikunni og voru með tveggja daga námskeið í skólanum, fyrir foreldra og kennara annars vegar og svo hins vegar fyrir krakkana. Frá þessu segir á vef Reykhólahrepps. Yrja og Marit standa fyrir Gleðiskruddunni, þær halda námskeið og umfjöllunarefnið er, eins og segir á heimasíðu…Lesa meira

true

Beygja, kreppa, sundur, saman

Á hverjum þriðjudegi og fimmtudegi rétt eftir klukkan fimm í eftirmiðdaginn ómar fjölbreytt stuðtónlist frá sundlaugarbakka útilaugarinnar í Borgarnesi. Tónlistina má meðal annars heyra á leikvelli grunnskólans, í Skallagrímsgarði og jafnvel upp á holti á Þórólfsgötunni. Að þessu sinni var það Björgvin Halldórsson og lagið Gullvagninn sem ómaði um íþróttasvæðið í Borgarnesi síðastliðinn fimmtudag og…Lesa meira

true

Hefur alltaf haft gríðarlegan áhuga á kvikmyndatökum og ljósmyndun

Skagamaðurinn Vilhjálmur Þór Guðmundsson hefur um langt árabil starfað sem kvikmyndatökumaður hjá Ríkissjónvarpinu. En hann hefur átt viðburðaríkan starfsferil hér og þar. Sem kvikmyndatökumaður hjá fréttadeild RÚV hefur hann upplifað erfiðar aðkomur að vettvangi slysa sem er eitthvað sem skilur eftir sig erfiðar minningar. Hann stofnaði eigið fyrirtæki í kvikmyndagerð og fluttist til Hollands þar…Lesa meira

true

Alþingismenn hitta kjósendur á kjördæmadögum

Kjördæmadagar eru á Alþingi þessa vikuna, dagana 14.–18. febrúar, en engir þingfundir verða fyrr en 21. febrúar. Kjördæmadagana nýta þingmenn oft á tíðum til að fara út í kjördæmi sín og hitta kjósendur, sveitarstjórnafólk, fulltrúa fyrirtækja og fleiri. Í hádeginu í dag hófu þingmenn Framsóknarflokks í Norðvesturkjördæmi kjördæmaviku á Landnámssetrinu í Borgarnesi hvar boðið var…Lesa meira

true

Bökuðu 2.200 sólarpönnukökur

Sólarpönnukökur eru bakaðar víða um land þegar sólin skín aftur í byggð eftir skammdegið. Í Ólafsvík er venjan að baka þær þegar sólin nær að skína á Snoppuna. Kvenfélag Ólafsvíkur bakaði sólarpönnukökur eins og undanfarin ár þó það væri í seinna lagi þetta árið, enda hafði ástandið og samkomutakmarkanir hamlað því. Kvenfélagskonur fóru snemma á…Lesa meira

true

Héraðsskjalasafn Akraness með nýjan miðlunarvef

Árið 2021 sótti Héraðsskjalasafn Akraness um miðlunarstyrk til Þjóðskjalasafns Íslands. Styrkurinn gengur út á það að gera elstu skjöl í safnkosti aðgengileg almenningi með miðlun á vef. Fara þarf eftir ákveðnum fyrirfram gefnum viðmiðum við ljósmyndun skjalanna, vinnslu og skráningu þeirra. Héraðsskjalasafnið fékk styrk til að ljósmynda og miðla elstu skjölum Innri-og Ytri Akraneshrepps og…Lesa meira

true

Tími til að gera gott

Hjúkrunarheimilið Silfurtún í Búðardal er einn þeirra staða í heilbrigðiskerfinu, þar sem álag hefur verið mikið að undanförnu. Þetta hefur með tímanum haft sín áhrif á starfsfólkið og er það orðið dálítið lúið.  Guðný Ágústa Skúladóttir og Björt Þorleifsdóttir sem vinna á heimilinu hittust nýlega og ræddu saman um vinnuna. Þeim fannst sig vanta smá…Lesa meira

true

Hafa verið krefjandi tímar fyrir nemendur og kennara

Á miðnætti síðastliðinn föstudag tóku gildi nýjar reglur hér á landi um slökun á sóttvarnareglum. Þá tilkynnti Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra meðal annars að reglugerð um sóttvarnir í skólastarfi yrði afnumin. Hann sagði að verið væri að afnema skólareglugerðina þannig að grunn- og framhaldsskólar fá félagslífið sitt allt til baka eftir nær tveggja ára hlé.…Lesa meira