{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Kjördæmadagar eru á Alþingi þessa vikuna, dagana 14.–18. febrúar, en engir þingfundir verða fyrr en 21. febrúar. Kjördæmadagana nýta þingmenn oft á tíðum til að fara út í kjördæmi sín og hitta kjósendur, sveitarstjórnafólk, fulltrúa fyrirtækja og fleiri. Í hádeginu í dag hófu þingmenn Framsóknarflokks í Norðvesturkjördæmi kjördæmaviku á Landnámssetrinu í Borgarnesi hvar boðið var upp á kjötsúpu og kynningu nýrra þingmanna. Stefán Vagn Stefánsson 1. þingmaður kjördæmisins stýrði fundi, Ásmundur Einar Daðason ráðherra flutti ávarp og svarað var fyrirspurnum gesta, sem voru á fimmta tuginn. Fjölmargt bar á góma. Þingmenn voru m.a. hvattir til að verja hagsmuni bænda sem stunda blóðmerahald og sömuleiðis áminntir um mögulega hættu sem takmarkalaust fiskeldi í sjó getur haft fyrir lífríki og náttúru. Þá var rætt um málefni Brákarhlíðar, atvinnumál og fleira.",
"innerBlocks": []
}
Alþingismenn hitta kjósendur á kjördæmadögum - Skessuhorn