Gönguskíðabrautin á golfvellinum. Ljósm. af stykkisholmur.is

Skautasvell og gönguskíðabraut í Stykkishólmi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Síðastliðinn laugardag, 12. febrúar, gerðu þau Magnús Ingi Bæringsson æskulýðs- og tómstundafulltrúi Stykkishólmsbæjar og Sigríður Ólöf Sigurðardóttir sér lítið fyrir og sópuðu snjó af svellinu við flugstöðina í Stykkishólmi. Fjöldinn allur af Hólmurum nýtti tækifærið og dustaði rykið af skautunum í kjölfarið en frá þessu er sagt á vefsíðu Stykkishólmsbæjar.\r\n\r\nNú geta gönguskíðagarpar í Stykkishólmi einnig tekið gleði sína þar sem búið er að ryðja gönguskíðabraut á golfvellinum. Eftir ábendingu frá íbúa hafði Magnús samband við Kristján Auðunsson sem ruddi brautina með þar til gerðum búnaði.\r\n\r\nVeðrið hefur leikið við Hólmara undanfarið eins og svo oft áður að þeirra sögn og gera veðurfróðir Hólmarar ráð fyrir að ekkert lát verði á því á næstu dögum. Því er um að gera fyrir bæjarbúa að njóta blíðunnar og spreyta sig á vetrarsportinu.",
  "innerBlocks": []
}
Skautasvell og gönguskíðabraut í Stykkishólmi - Skessuhorn