Sólrún Lind Egilsdóttir gerir hér æfingar með lóðum. Ljósm. glh.

Beygja, kreppa, sundur, saman

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Á hverjum þriðjudegi og fimmtudegi rétt eftir klukkan fimm í eftirmiðdaginn ómar fjölbreytt stuðtónlist frá sundlaugarbakka útilaugarinnar í Borgarnesi. Tónlistina má meðal annars heyra á leikvelli grunnskólans, í Skallagrímsgarði og jafnvel upp á holti á Þórólfsgötunni. Að þessu sinni var það Björgvin Halldórsson og lagið Gullvagninn sem ómaði um íþróttasvæðið í Borgarnesi síðastliðinn fimmtudag og dró að forvitinn blaðamann. Í dýpri enda útilaugarinnar reyndist í gangi vatnsleikfimi kvenna undir leiðsögn Írisar Grönfeldt, íþróttafræðings og vatnsleikfimi leiðbeinanda. Mikil einbeiting, hlátur og gleði einkenndi kvennahópinn í lauginni sem allar gerðu einhverskonar form af „beygja, kreppa, sundur, saman,“ æfingum.\r\n\r\n<em>Sjá fleiri myndir í Skessuhorni vikunnar.</em>",
  "innerBlocks": []
}
Beygja, kreppa, sundur, saman - Skessuhorn