
Silfurtún í Búðardal.
Tími til að gera gott
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Hjúkrunarheimilið Silfurtún í Búðardal er einn þeirra staða í heilbrigðiskerfinu, þar sem álag hefur verið mikið að undanförnu. Þetta hefur með tímanum haft sín áhrif á starfsfólkið og er það orðið dálítið lúið. Guðný Ágústa Skúladóttir og Björt Þorleifsdóttir sem vinna á heimilinu hittust nýlega og ræddu saman um vinnuna. Þeim fannst sig vanta smá birtu í daginn og veltu fyrir sér hvort ekki væri þannig komið líka með fleiri starfsmenn, enda orðið langvarandi mikið álag og erfitt að halda gleðinni og góða skapinu, þegar svo er komið. Guðný Ágústa fékk þá þessa fínu hugmynd.\r\n\r\nHún var að koma vinnufélögum þeirra á óvart. Þess vegna höfðu þær samband við ýmis fyrirtæki, bæði í Búðardal og annars staðar, til að athuga hvort þau væru ekki til í að leggja til eitthvert smáræði, sem væri hægt að gauka að starfsmönnum svo þeir gætu gert vel við sig.\r\n\r\nSkemmst er frá því að segja að viðbrögð fyrirtækjanna voru mjög góð og fengu þær sendingar frá m.a. Krambúðinni, MS, Body Shop, Vífilfelli, Vilko og L’Occitane. Þessu útbjuggu þær pakka úr til samstarfsmanna sinna og fóru með upp á Silfurtún. Þá gátu allir farið glaðir heim af vaktinni og gert sér dagamun. Þökk sé tveimur hugulsömum konum.",
"innerBlocks": []
}