Gleðiskruddurnar Yrja Kristinsdóttir og Marit Davíðsdóttir. Ljósm. Herdís E. Matthíasdóttir

Gleðiskruddurnar heimsóttu Reykhólaskóla

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Þær Yrja Kristinsdóttir og Marit Davíðsdóttir komu vestur í Reykhólaskóla í vikunni og voru með tveggja daga námskeið í skólanum, fyrir foreldra og kennara annars vegar og svo hins vegar fyrir krakkana. Frá þessu segir á vef Reykhólahrepps.\r\n\r\nYrja og Marit standa fyrir Gleðiskruddunni, þær halda námskeið og umfjöllunarefnið er, eins og segir á heimasíðu þeirra: „Gleðiskruddunámskeiðið byggist á jákvæðri sálfræði og leggur áherslu á að efla sjálfsþekkingu og auka vellíðan. Á námskeiðinu er lögð áhersla á gleði og að hafa gaman og blöndum við saman fræðslu og leik. Ef að veður leyfir förum við jafnvel eitthvað út í náttúruna. Helstu áherslur eru að efla; sjálfsþekkingu, bjartsýni og von, styrkleika, trú á eigin getu, gróskuhugarfar og núvitund.“\r\n\r\nEinnig eru þær með dagbók, Gleðiskrudduna, fyrir börn á aldrinum 6 til 15 ára sem byggir á hugmyndafræði jákvæðrar sálfræði. Fyrri daginn, þriðjudaginn 8. febrúar voru þær með fyrirlestur fyrir foreldra og kennara en vegna veðurs urðu þær að vera með hann á samskiptaforritinu Teams. Síðari daginn voru þær síðan með námskeið fyrir krakkana, skipt eftir aldri, 2. til 4. bekk, 5. til 7. bekk og 8. til 10. bekk. Þær komu með dagbækur sem þær voru með til sölu. Að sögn voru allir þátttakendur sammála um að þetta hefði verið frábært námskeið.\r\n\r\nUngmennafélagið Afturelding stóð fyrir námskeiðshaldinu og var það styrkt af Lions, kvenfélaginu, tómstundastarfinu, foreldrafélaginu og skólanum.",
  "innerBlocks": []
}
Gleðiskruddurnar heimsóttu Reykhólaskóla - Skessuhorn