Flosi og Forkur glæsilegir í slaktaumatöltinu. Ljósm. Meistaradeildin.

Flosi og Forkur sigruðu slaktaumatöltið

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Borgfirðingurinn Flosi Ólafsson og Forkur frá Breiðabólsstað léku á alls oddi í úrslitum í slaktaumatölti í meistaradeildinni í hestaíþróttum síðastliðinn fimmtudag. Flosi og Forkur voru í fjórða sæti eftir forkeppnina með einkunnina 7,70 en þeir komu sterkir inn í úrslitum og sigruðu örugglega með einkunnina 8,21. Flosi sagði í samtali við Huldu Geirsdóttur að keppni lokinni að þetta hafi verið í fyrsta skipti sem Forkur fer í slaktaumatölt og að ekki hafi verið langt síðan sú hugmynd hafi kviknað að fara með hann í þessa keppni. „Hann hefur farið í eina gæðingakeppni og svo hér í kvöld,“ sagði Flosi spurður um keppnisreynslu Forks.\r\n\r\nForkur kemur úr ræktun fjölskyldu Flosa á Breiðabólsstað í Reykholtsdal og hefur áður fengið góða dóma á Landsmóti. Hann var efstur í flokki 5 vetra stóðhesta á Landsmóti 2016 og fimmti í flokki 7 vetra stóðhesta árið 2018. Flosi segir það vera enn sætara að hann skuli koma úr eigin ræktun. „Þetta er bara yfirburðahestur og ég vissi það alltaf að hann gæti hentað í hvað sem er,“ sagði Flosi í samtali við Huldu.",
  "innerBlocks": []
}
Flosi og Forkur sigruðu slaktaumatöltið - Skessuhorn