Bökuðu 2.200 sólarpönnukökur

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Sólarpönnukökur eru bakaðar víða um land þegar sólin skín aftur í byggð eftir skammdegið. Í Ólafsvík er venjan að baka þær þegar sólin nær að skína á Snoppuna. Kvenfélag Ólafsvíkur bakaði sólarpönnukökur eins og undanfarin ár þó það væri í seinna lagi þetta árið, enda hafði ástandið og samkomutakmarkanir hamlað því. Kvenfélagskonur fóru snemma á fætur og hófust handa við pönnukökurnar um hálf fimm um morguninn síðastliðinn fimmtudag. Deigið höfðu þær undirbúið daginn áður enda var búið að panta um það bil 2.200 pönnukökur og þær fyrstu þurftu að vera tilbúnar upp úr klukkan sjö. Þær gáfu sér þó tíma fyrir myndatöku þessar hressu kvenfélagskonur þegar ljósmyndara bar að garði. Kvenfélagskonur í KÓ hafa bakað pönnukökur fyrir bæjarbúa í langan tíma og hafa alltaf haft hreinlæti og svo sóttvarnir í hávegum. Þær tóku þó flestar niður hárnetin og grímurnar rétt á meðan myndin var tekin.",
  "innerBlocks": []
}
Bökuðu 2.200 sólarpönnukökur - Skessuhorn