Listamenn koma saman í Listahúsi í Borgarnesi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Laugardaginn 26. febrúar verður sýning í Listahúsi Michelle Bird við Sæunnargötu 12 í Borgarnesi. Sýningin er partur af sýningaröð þar sem Michelle mun setja upp sýningar með gestalistamönnum síðasta laugardag hvers mánaðar fram í júní. Sýningin verður opin frá klukkan 12 til 15 og boðið verður upp á lifandi tónlist, ljósmyndir og málverk en auk Michelle Bird munu listamennirnir Gunnhildur Lind Hansdóttir, Jorge Pascual Hernandez og Sigríður Ásta Olgeirsdóttir taka þátt í sýningunni. Hægt er að fylgjast með þeim viðburðum sem í gangi eru í Listahúsinu á nýrri vefsíðu arthouseborgarnes.com",
  "innerBlocks": []
}
Listamenn koma saman í Listahúsi í Borgarnesi - Skessuhorn