Fréttir

true

Snjóflóð féllu á Skarðsströnd

Þrjú snjóflóð hafa fallið á veginn um Skarðsströnd í Dölum á vikutíma. Tvö snjóflóð féllu þar í byrjun síðustu viku og í gærkveldi féll það þriðja og er vegurinn lokaður, en unnið er að því að opna hann að nýju. Vegurinn er einnig lokaður um Klofningsskarð þar sem tveggja metra skafl er yfir veginum og…Lesa meira

true

Fjölmennt útkall vegna neyðarsendis á Vatnajökli

Fimmtíu björgunarsveitarmenn frá níu björgunarsveitum af sunnanverðu landinu eru nú á leið upp á Vatnajökul vegna neyðarkalls sem barst frá neyðarsendi á fjórða tímanum í nótt. Björgunarsveitir allt frá höfðuborgarsvæðinu til Austurlands voru boðaðar í ljósi þess hvaðan neyðarboðin koma. Útkallið barst á fjórða tímanum í nótt. „Aðstæður á svæðinu eru erfiðar, mikil veðurhæð og…Lesa meira

true

Yfirlýsing frá Félagi fréttamanna um lögreglurannsókn

Félag fréttamanna, sem er fag- og stéttarfélag fréttamanna á fréttastofu RUV, lýsir yfir áhyggjum og undrun yfir því að lögreglan á Norðurlandi skuli kalla blaða- og fréttamenn til yfirheyrslu og veita þeim stöðu sakborninga vegna starfa þeirra við blaðamennsku. Yfirlýsingin er svohljóðandi: „Málavextir eru enn óljósir, en lögreglan hefur tilkynnt að minnsta kosti fjórum blaðamönnum,…Lesa meira

true

Bára býður sig ekki fram aftur

Bára Daðadóttir, sem hefur verið bæjarfulltrúi fyrir Samfylkinguna á Akranesi síðustu fjögur ár, tilkynnti það á facebook síðu sinni á mánudagskvöldið að hún hafi ákveðið að bjóða sig ekki aftur fram til starfa í bæjarstjórn næsta kjörtímabil. „Undanfarin fjögur ár hef ég setið í bæjarstjórn Akraness og verið formaður skóla- og frístundaráðs. Að hafa fengið…Lesa meira

true

Davíð gefur áfram kost á sér

Davíð Sigurðsson í Miðgarði, sem skipar annað sæti á lista Framsóknarflokksins í Borgarbyggð, hefur tilkynnt að hann gefi kost á sér að nýju á lista flokksins. „Við höfum staðið vaktina sem minnihluti og bent ótal sinnum á hluti sem við töldum að ætti að gera á annan hátt og stundum fengum við áheyrn og stundum…Lesa meira

true

Fellaskjól lokað fyrir gestum

Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Fellaskjóli í Grundarfirði hefur nú verið lokað fyrir gestum vegna fjölda smita í samfélaginu. Á Facebook síðu heimilisins kemur fram að ástandið verður metið að nýju í næstu viku.Lesa meira

true

Fylgdarakstur meðan veður leyfir

Á meðan veður leyfir er áætlað að hafa fylgdarakstur á Kjalarnesi, frá Esjumelum að Hvalfjarðargöngum og til baka, í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Vegagerðin var að senda. Uppfært núna klukkan 17:30. Veður hefur versnað á Kjalarnesi og hefur fylgdarakstri verið hætt.Lesa meira

true

Kosið um ný gatnaheiti á Sementsreit

Akraneskaupstaður leitar nú aðstoðar íbúa með að velja gatnaheiti á Sementsreitnum og er um að ræða fimm gatnaheiti en kosningin er í tveimur liðum. Annars vegar er kosið um gatnaheiti á götu sem á mynd er titluð Gata A og svo hins vegar er kosið um gatnaheiti á hinum fjórum götunum saman en þar er…Lesa meira

true

Spáð vaxandi vindi síðdegis

Á Kjalarnesi, við Hafnarfjall og á Reykjanesbraut er nú vaxandi vindhraði og um og yfir 20 m/s frá því um klukkan 16 í dag. Þá hlánar og vindur gengur alveg niður nærri miðnætti. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni sem hvetur fólk til að fylgjast með upplýsingum um færð og veður áður en lagt…Lesa meira