Horft yfir svæðið sem um ræðir. Ljósm. mm.

Kosið um ný gatnaheiti á Sementsreit

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Akraneskaupstaður leitar nú aðstoðar íbúa með að velja gatnaheiti á Sementsreitnum og er um að ræða fimm gatnaheiti en kosningin er í tveimur liðum. Annars vegar er kosið um gatnaheiti á götu sem á mynd er titluð Gata A og svo hins vegar er kosið um gatnaheiti á hinum fjórum götunum saman en þar er kosið um þemu.\r\n\r\nTillögur að gatnaheitum fyrir götu A eru alls sjö: Ástarbraut, Baldursbraut, Sementsbraut, Sjávarbraut, Sjávarbryggja, Skerjabraut og Stórabryggja.\r\n\r\nTillögur um þemu að gatnaheitum fyrir götur B, C, D og E eru fimm og eru eftirfarandi: Fyrsta tillagan vísar í kennileiti um fjörugerðir við Akranes; Klettaströnd, Leiruströnd, Sandströnd og Skeljaströnd. Önnur tillagan er vísun í bakka; Faxabakki, Langibakki, Sandabakki og Smiðjubakki. Sú þriðja er vísun í bryggju sem byggð er við sjó; Bátabryggja, Litlabryggja, Sementsbryggja og Skútubryggja. Fjórða er vísun í sjó; Sjávaralda, Sjávarblær, Sjávarströnd og Sjávarsýn. Fimmta og síðasta tillagan er vísun í eldri götunöfn á Akranesi; Freyjugata, Óðinsgata, Skímisgata og Sleipnisgata.\r\n\r\nHægt er að kjósa um tillögurnar á vef Akraneskaupstaðar; <a href=\"http://akranes.is.\">http://akranes.is.</a>\r\n\r\n[caption id=\"attachment_51107\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-51107 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/02/Kosid-um-ny-gatnaheiti-a-Sementsreit_2-600x402.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"402\" /> Kort sem vísað er til í fréttinni.[/caption]",
  "innerBlocks": []
}
Kosið um ný gatnaheiti á Sementsreit - Skessuhorn